Strandveiðar hafnar - myndir
Hlöddi þurfti að taka Veigu VE í tog á miðunum. Eyjafréttir/Eyjar.net: Óskar Pétur

Strand­veiðar hófust í dag. Veiðitímabilið stend­ur yfir í 48 daga. Gefin hafa verið út 775 ­leyfi í ár og er þetta er metfjöldi báta á strandveiðum. Til samanburðar lönduðu 756 bátar afla á strandveiðum í fyrra.

Strandveiðarnar virka þannig að bátar mega veiða í maí, júní, júlí og ágúst. Veiða má 12 daga í hverjum mánuði og einungis frá mánudegi til fimmtudags. Nokkrir bátar hófu strandveiðar frá Eyjum í dag. Þeirra á meðal Hlöddi VE og Veiga VE. Sá síðarnefndi þurfti reyndar aðstoð í land aftur eftir smá byrjunarörðuleika á miðunum. Óskar Pétur Friðriksson, ljósmyndari Eyjafrétta var á bryggjunni og fylgdist með komu bátana og löndun. Á myndunum má einnig sjá hversu skítug höfnin er við löndunarbryggjuna inn í botni.

 

Nýjustu fréttir

Myllan flytur úr Dalnum – Eyjamenn hvattir til að halda ró sinni
Spáð hækkandi ölduhæð við Landeyjahöfn
Olís deildirnar hefjast í vikunni
Helgarnir sigruðu á 100 ára afmælismótum TV
Fræðsla um átraskanir í Landakirkju
Stefnt að þrýstiprófunum á NSL-4 í vikunni
Gagnasöfnun vegna fýsileikamats Eyjaganga lokið
Opið fræðsluerindi um heilabilun og samskipti
Eyjafréttir
Friðhelgisyfirlýsing

Þessi vefsíða notar fótspor til að við getum veitt þér bestu notendaupplifun. Upplýsingar um fótspor eru geymdar í vafranum þínum og framkvæma aðgerðir eins og að þekkja þig þegar þú kemur aftur á vefsíðu okkar og hjálpa teymi okkar að skilja hvaða hluta vefsíðunnar þér finnst áhugaverðast og gagnlegast.