Þar segir enn fremur að í mars síðastliðnum hafi bæjarráð Vestmannaeyja auglýst í tengslum við síðari úthlutun ársins á styrkjum vegna ,,Viltu hafa áhrif” eftir umsóknum. Markmiðið sjóðsins er að styrkja menningar-, lista-, íþrótta- og tómstundastarfsemi í Vestmannaeyjum með því að styðja við og hvetja einstaklinga, félagasamtök og listahópa til eflingar á viðburðum og verkefnum á sviði menningar, lista, íþrótta og tómstunda. Fjölmargar góðar ábendingar hafa borist í gegnum tíðina. Má þar m.a. nefna styrki til fjölda sýninga, menningartengda bókaútgáfa, leiktækja á opnum svæðum og göngustíga.
Listamenn, einstaklingar og félagasamtök verða að vera skráð í Vestmannaeyjum og verkefni/viðburður þarf að fara fram í Vestmannaeyjum.
Verkefnin sem hljóta styrki eru fjölbreytt og spennandi að vanda. Óskar Vestmannaeyjabær öllum styrkþegum til hamingju. Meðfylgjandi er listi yfir þau verkefni sem hljóta styrk úr sjóðnum:
Skáknámskeið fyrir fullorðna:
12 vikna skáknámskeið fyrir fullorðna byrjendur í Vestmannaeyjum. Skipulagt námskeið þar sem þátttakendur læra grunnatriði í skák frá upphafi og byggja smám saman á þekkingu sinni.
Upphæð: 250.000
Spjallfundir fyrir 18 ára og eldri með einhverfu:
Bjóða upp á rými fyrir ungt fólk með einhverfu til að hitta aðra einstaklinga, rjúfa félagslega einangrun og auka færni til að vera virkir þegnar í samfélaginu.
Upphæð: 250.000
Smiðjudagar fyrir nemendur á miðstigi GRV:
Halda smiðjudaga þar sem verður boðið upp á þrjár skapandi smiðjur.
Upphæð: 200.000
Street Ball kvöld
Opnir fótboltaviðburðir í Vestmannaeyjum þar sem börn og ungmenni taka þátt í frjálsum leikjum og áskorunum á batta- og öðrum völlum við skóla bæjarins.
Upphæð: 100.000
Sumarstjörnur:
Nokkur skammtíma námskeið fyrir börn þar sem þau fá færi til að uppgötva styrkleika sína og njóta sín í gegnum listir og hreyfingu. Til dæmis söng, dans, list og hugrekki.
Upphæð: 400.000
Hrekkjavaka:
Halda skipulagða hrekkjavöku í Vestmannaeyjum með þátttöku íbúa, skreytingakeppni húsa, sameiginlegu korti yfir þátttakendur og hrekkjavökuballi fyrir börn og fullorðna.
Upphæð: 50.000
Er allt í lagi?:
Árið 2025 hóf Þjóðhátíðarnefnd forvarnarátak undir heitinu “Er allt í lagi?” Skilaboðin eru einföld og ætluð til að minna okkur á að gæta að okkur sjálfum og hvort öðru. Átakið mun halda áfram í ár.
Upphæð: 250.000
Softballmót:
ÍBV hyggist að halda árlegt softballmót milli jóla og nýárs fyrir allan aldur. Fyrr um daginn spilar styrkleiki 2 og styrkleiki 1 spilar eftir það svo lokahóf. Markmið er að skapa hefð og efla félagsanda.
Upphæð: 100.000
Jólatónleikar:
Kór Landakirkju mun standa fyrir veglegum jólatónleikum í desember. Fengin verður úrvals einsöngvari og hljóðfæraleikarar. Tónleikarnir verða tvískiptir og því mikil fjölbreytni í tónlistarvali.
Upphæð: 300.000
Kaup á vörum:
Sækja um styrk til að kaupa sand og fóður fyrir kotið. Einnig vantar að kaupa td. þvottavél. Svo er læknisþjónusta dýr. Starfið er allt rekið í sjálfboðavinnu.
Upphæð: 400.000
Söguganga:
Gerð GPS-stýrðrar sögugöngu um Tyrkjaránið í Vestmannaeyjum í VoiceMap á íslensku og ensku fyrir heimamenn og gesti.
Upphæð: 400.000
Viðburðir á Hraunbúðum:
Hollvinasamtök Hraunbúða hafa boðið upp á nokkra tónlistarviðburði á heimilinu undanfarin ár og vonum að það geti orðið framhald á því. Við höfum reynt að hafa þetta veglegt, boðið upp á flottar veitingar og boðið aðstandendum með svo hægt sé að eiga góða stund og skapa góðar minningar með okkar allra besta fólki.
Upphæð: 300.000
Listasmiðja:
Halda skapandi og opið listaverkefni fyrir íbúa Vestmannaeyja þar sem áhersla verður á steinamálun og jólasmiðju. Verkefnið felst annars vegar í opnum vinnustofum.
Upphæð: 300.000





