Styrkja sérfræðinga í heilbrigðisþjónustu í dreifðum byggðum
HSU007
Starfstöð HSU í Eyjum.

Starfshópur sem Willum Þór Þórsson heilbrigðisráðherra fól að gera tillögur um leiðir til að jafna aðgang að ýmis konar sérfræðiþjónustu á heilbrigðissviði óháð búsetu hefur skilað niðurstöðum sínum. Tillögur hópsins snúa einkum að því hvernig nýta megi heimildir í lögum um Menntasjóð námsmanna til að beita tímabundnum ívilnunum við endurgreiðslu námslána, til að styrkja mönnun sérfræðinga í heilbrigðisþjónustu, einkum í dreifðum byggðum.

Í VII. kafla laga um Menntasjóð námsmanna eru ákvæði um sértækar aðgerðir sem lúta að tímabundnum ívilnunum við endurgreiðslu námslána við sérstök skilyrði. Annars vegar er samkvæmt 27. gr. laganna heimilt að beita ívilnuninni ef fyrir liggja upplýsingar um viðvarandi eða fyrirsjáanlegan skort á fólki með tiltekna menntun. Markmiðið er að skapa sérstakan hvata fyrir fólk til að sækja sér þá tilteknu menntun og til að starfa í tiltekinni starfsgrein. Hins vegar er samkvæmt 28. gr. laganna heimilt að beita umræddri ívilnun til að bregðast við ástandi þar sem skortur er á menntuðum einstaklingum á ákveðnum svæðum. Ívilnunin er þá bundin því skilyrði að lánþegi sem búsettur er á viðkomandi svæði nýti menntun sína til starfa í a.m.k. 50% starfshlutfalli í viðkomandi byggð í að lágmarki tvö ár.

Verkefni starfshóps heilbrigðisráðherra var að leggja til útfærslu á því hvernig beita megi fyrrgreindum heimildum um ívilnanir í þessu skyni og hvaða forsendur skuli liggja til grundvallar. Þessu er lýst ýtarlega í meðfylgjandi skýrslu, ásamt stuttri samantekt um meginefni tillagnanna.

Nýjustu fréttir

Góður mánudagur sem varð enn betri!
Fimm skip til loðnuleitar
Löndun Breka VE í Grundarfirði – flókið verkefni og fumlaus vinnubrögð
Gong slökun, endurstilling í hraða nútímans
Bæjarráð gagnrýnir samgönguáætlun
Elliði með fimm mörk í stórsigri Íslands
Herjólfur í Þorlákshöfn í dag og á morgun
Orkumálin til skoðunar hjá ráðherra
Eyjafréttir
Friðhelgisyfirlýsing

Þessi vefsíða notar fótspor til að við getum veitt þér bestu notendaupplifun. Upplýsingar um fótspor eru geymdar í vafranum þínum og framkvæma aðgerðir eins og að þekkja þig þegar þú kemur aftur á vefsíðu okkar og hjálpa teymi okkar að skilja hvaða hluta vefsíðunnar þér finnst áhugaverðast og gagnlegast.