Tap og Glenn missti af gullskónum
Karlalið ÍBV tapaði síðasta leik sínum í Pepsídeildinni í ár en liðið lá fyrir Fjölni í Grafarvogi 3:0. Á sama tíma skoraði Gary Martin þrennu í sigri KR á �?ór í Vesturbænum og Martin náði því að nappa gullskónum af Jonathan Glenn, framherja ÍBV sem hefur verið efstur á markalistanum síðustu vikur en Glenn fór meiddur af velli í lok leiks. Sannarlega svekkjandi endir á tímabilinu en líklega í samræmi við sumarið í heild, frekar svekkjandi.
Fjölnismenn komust upp fyrir ÍBV í töflunni með sigrinum, skutust upp í 9. sæti og enduðu tímabilið með 23 stig. ÍBV endaði hins vegar í 10. sæti með 22 stig, aðeins einu stigi frá falli. Undanfarin ár hefur verið kallað eftir framherja sem átti að leysa allan vanda Eyjaliðsins. Nú er ÍBV hins vegar með næst markahæsta leikmann deildarinnar en árangurinn er langt fyrir neðan væntingar flestra í kringum liðið. Eitthvað verður því að endurskoða eitt og annað í kringum liðið, ekki bara innan vallar heldur líka utan vallar og er sú vinna reyndar hafin.

Nýjustu fréttir

„Fjörutíu árum síðar – með þakklæti til FÍV“
Þrír reynslumiklir sjómenn heiðraðir á Sjómannadaginn
Kristín Klara spilaði í Sundsvall með u-19 ára landsliðinu
Æskudraumur Díönu Daggar rættist
Hugrekki er oft bara að halda áfram
Skólanum slitið á Stakkó
Hrafnhildur Hallgrímsdóttir með 9,0 í meðaleinkunn
Íris ráðin bæjarstjóri til næstu fjögurra ára
Eyjafréttir
Friðhelgisyfirlýsing

Þessi vefsíða notar fótspor til að við getum veitt þér bestu notendaupplifun. Upplýsingar um fótspor eru geymdar í vafranum þínum og framkvæma aðgerðir eins og að þekkja þig þegar þú kemur aftur á vefsíðu okkar og hjálpa teymi okkar að skilja hvaða hluta vefsíðunnar þér finnst áhugaverðast og gagnlegast.