Það þarf ekki margar í hundraðið, en nokkrar í þúsundið
Hjónin Bryndís Rögnvaldsdóttir og Unnar í Háagarði.

Það má segja að Unnar Guðmundsson í Háagarði sé trillu- og lundaveiðikarl sem náði að tengja samfélag veiðimanna sem fæddust fyrir aldamótin 1900 og þeirra sem enn stunda sjóinn á smábátum og lundaveiði í Eyjum.

Á mótunarárum Unnars eru Eyjarnar að stíga skref inn í nýja tíma. Enn var stundaður landbúnaður á Kirkjubæjum og kýr og kindur voru í barnæsku hans í Háagarði og austurbærinn líkari sveit en bæ með grónum túnum og beitarlandi hvert sem litið var.

Háigarður stóð eins og kastali á besta stað við hæð austan við Svanhól, þá kom Hlaðbær og Skáli og norðan við Austurveginn á stóðu Vilborgarstaðir vestri og eystri. Nokkru austar við Brennihól var Vallartún og þá var stutt í Norðurbæ á Kirkjubæjum þar sem Þórdís systir Unnars var bóndi ásamt manni sínum Magnúsi Péturssyni, betur þekktur sem Maggi á Kirkjubæ. Í hjarta austurbæjarins lá Vilpan, gamalt vatnsból bæjarmanna og síðar leiksvæði barna og unglinga sumar og vetur.

Þannig hefst frábært viðtal Ásmundar Friðrikssonar í nýjasta blaði Eyjafrétta sem tengir gamla og nýja tíma.

Nýjustu fréttir

Hver er bestur, Óli prestur
SFS: Ekki öll nótt úti um stærri loðnukvóta
Bæjarstjórn fundar í dag – bein útsending
Sjö ferðir Herjólfs falla niður vegna viðhalds
Herjólfur til Landeyjahafnar í dag og Þorlákshafnar á morgun
Þrjár ólögmætar uppsagnir kalla á skýr svör
Vinnslustöðin á erlendum vettvangi
„Vestmannaeyjar eru til fyrirmyndar“
Eyjafréttir
Friðhelgisyfirlýsing

Þessi vefsíða notar fótspor til að við getum veitt þér bestu notendaupplifun. Upplýsingar um fótspor eru geymdar í vafranum þínum og framkvæma aðgerðir eins og að þekkja þig þegar þú kemur aftur á vefsíðu okkar og hjálpa teymi okkar að skilja hvaða hluta vefsíðunnar þér finnst áhugaverðast og gagnlegast.