Þjóðhátíðin hennar Yrsu
Mynd: heimaslóð.is

Þýsk-franska sjónvarsstöðin Arte framleiddi á síðasta ári stuttmynd um Þjóðhátíð. Myndin var frumsýnd í þýska og franska sjónvarpinu fyrr á árinu og nú er hún aðgengileg á vefsíðu sjónvarpsstöðvarinnar.

Forsaga verkefnisins er sú að Yrsa Sigurðardóttir rithöfundur var fengin til að velja og leikstýra þætti fyrir þessa flottu sjónvarpsstöð. Hún gat valið hvað sem var, en þar sem að hún er mikill aðdáandi Vestmannaeyja og sleppir helst ekki Þjóðhátíð að þá varð hátíðin og Eyjarnar fyrir valinu.

Það er áhugavert að sjá hvernig gestsaugað sér Þjóðhátíðina og hvernig Gestaþáttur hinna fornu  Hávamála er fléttaður inn í hátíðarþemað. Þátturinn er auðvitað framúrskarandi kynning á þessari einstöku hátíð sem okkur öllum þykir svo vænt um.

 

Nýjustu fréttir

Herrakvöld fótboltans
Fundur bæjarstjórnar í beinni
Samgöngur og sannindi
Staðan í Landeyjahöfn
Vestmannaeyjahöfn, lífæð samfélagsins
Sæunn Magnúsdóttir er tilbúin í slaginn
ÍBV í úrslit eftir sigur gegn Haukum
Erfið staða í Land­eyja­höfn
Eyjafréttir
Friðhelgisyfirlýsing

Þessi vefsíða notar fótspor til að við getum veitt þér bestu notendaupplifun. Upplýsingar um fótspor eru geymdar í vafranum þínum og framkvæma aðgerðir eins og að þekkja þig þegar þú kemur aftur á vefsíðu okkar og hjálpa teymi okkar að skilja hvaða hluta vefsíðunnar þér finnst áhugaverðast og gagnlegast.