Þrjú skip Vinnslustöðvarinnar farin til makrílveiða
DSC 0110
Gullberg VE heldur á makrílveiðar. Eyjafréttir/Eyjar.net: ÓPF

„Við fórum af stað í morgun kl 10:00. Hugmyndin var að fara út hérna suður af Eyjum og leita sig svo í austur. Það eru einhver skip búin að leita suðaustur af landinu fyrr í vikunni en þau eru núna komin út í Síldarsmugu. Hef ekki heyrt af aflabrögðum en þetta er bara rétt að byrja og núna þarf að finna hvar fiskurinn heldur sig,” segir Sindri Viðarsson sviðsstjóri uppsjávarsviðs Vinnslustöðvarinnar aðspurður um komandi makrílvertíð.

Spurður um hvaða skip fari á makrílveiðar frá VSV segir hann að það séu Sighvatur, Gullberg og Huginn. „Við getum veitt einhver 14.000 tonn.” Óskar Pétur Friðriksson tók meðfylgjandi myndir í morgun þegar skip Vinnslustöðvarinnar héldu eitt af öðru úr höfn.

Huginn VE heldur úr höfn
Sighvatur Bjarnason VE á leið á miðin.

Nýjustu fréttir

Prófkjör Sjálfstæðisflokksins er í dag
Vestmannaeyjar í gegnum linsu liðins tíma
Gleðilegan kjördag
Spennandi prófkjör Sjálfstæðismanna í Eyjum
Pílan: Deildarkeppni lokið – Útsláttur hefst
Fasteignaumfjöllunin – útsýni á heimsmælikvarða
Fyrir þig en ekki sjálfa sig
Laskað lið ÍBV tapaði gegn Val
Eyjafréttir
Friðhelgisyfirlýsing

Þessi vefsíða notar fótspor til að við getum veitt þér bestu notendaupplifun. Upplýsingar um fótspor eru geymdar í vafranum þínum og framkvæma aðgerðir eins og að þekkja þig þegar þú kemur aftur á vefsíðu okkar og hjálpa teymi okkar að skilja hvaða hluta vefsíðunnar þér finnst áhugaverðast og gagnlegast.