Þurfum að halda einbeitningunni  áfram

Hlé er nú á leikjum í Bestu deild kvenna vegna Evrópumeistaramótsins í Englandi. Við fengum þjálfara kvennaliðsins, Jonathan Glenn í  stutt spjall en hann hefur náð góðum árangri með ÍBV það sem af er sumri og liðið situr í þriðja sæti deildarinnar. Var Jonathan valinn besti þjálfari fyrrihluta tímabilsins þegar það var gert upp á Stöð2 Sport.

„Ég er mjög ánægður með hvernig okkur hefur gengið hingað til. Aðalástæðan er líklega sú að leikmenn hafa sýnt mikla tryggð og allir eru að leggja sig fram. Ég er mjög ánægður hvað þær hafa tekið vel í öll fyrirmæli hjá okkur þjálfurunum og hvernig þær gefa sig allar í verkefnið. Við þurfum að sjá þessa einbeitningu áfram hjá leikmönnum í seinni helmingi mótsins,“ segir Glenn.

Olga Sevcova, leikmaður ÍBV var í liði Bestu deildarinnar fyrri hlutans ásamt öflugum leikmönnum. ÍBV á næst heimaleik gegn KR, þann 9. ágúst kl. 17:30.

Nánar um Jonathan Glenn og kvennalið ÍBV í næsta blaði Eyjafrétta sem kemur út 22. júli nk.

Mynd af ÍBV-Sport.

Nýjustu fréttir

Gyllta flóran frá Féló vann Stíl 2026
Útboð Vestmannaeyjabæjar um heilsurækt aftur til kærunefndar
Myndband frá höfninni: Steðji VE landar
Að loknu prófkjöri
Bærinn eignfærir lögfræðikostnað  
ÍBV tapaði gegn Haukum
Bæjarráð hafnar bótakröfu vegna gatnagerðar við Alþýðuhús
Laxey rís í Vestmannaeyjum
Eyjafréttir
Friðhelgisyfirlýsing

Þessi vefsíða notar fótspor til að við getum veitt þér bestu notendaupplifun. Upplýsingar um fótspor eru geymdar í vafranum þínum og framkvæma aðgerðir eins og að þekkja þig þegar þú kemur aftur á vefsíðu okkar og hjálpa teymi okkar að skilja hvaða hluta vefsíðunnar þér finnst áhugaverðast og gagnlegast.