Þvílíkt útsýni yfir hátíðarbúinn Herjólfsdal
Undirbúningur fyrir Þjóðhátíð er nú á lokametrunum og Herjólfsdalur óðum að taka á sig hátíðarmynd
Dalurinn, Þjóðhátíð
Hátíðarsvæðið. Ljósmynd/Halldór B. Halldórsson

Hvað er betra en Þjóðhátíð í góðu veðri? Að því spyr Halldór B. Halldórsson kvikmyndagerðarmaður í nýjasta myndbandi sínu, sem hann tók í blíðunni í morgun. Í myndbandinu flýgur Halldór dróna sínum yfir Herjólfsdal, sem nú er kominn í sannkallaðan hátíðarbúning.

Fjöldi fólks hefur lagt hönd á plóg undanfarna daga við að koma Dalnum í sitt allra besta form. Hvítu tjöldin eru risin, hátíðarsvæðið óðum að fyllast af lífi og tilhlökkunin leynir sér ekki.

Þjóðhátíð verður sett á morgun, föstudag, og fram undan er stærsta hátíð ársins í Vestmannaeyjum. Veðrið lék við Eyjamenn í morgun og Herjólfsdalur skartaði sínu fegursta þegar Halldór fangaði stemninguna úr lofti.

Myndbandið má sjá hér að neðan.

Play Video

Nýjustu fréttir

Herjólfur siglir til Þorlákshafnar síðdegis
Dýpkuðu 32 þúsund rúmmetra við Landeyjahöfn
Logn og bros á Stórhöfða
Slökkviliðsstjóri söðlar um eftir tíu ár í starfi
Útlit fyrir breyttar siglingar Herjólfs næstu daga
Skjöldur haldinn í þriðja sinn
Erlingur til GWD Minden – Bergvin tekur við sem aðalþjálfari ÍBV
Heimir fagnaði 3-0 sigri gegn Ísrael
Eyjafréttir
Friðhelgisyfirlýsing

Þessi vefsíða notar fótspor til að við getum veitt þér bestu notendaupplifun. Upplýsingar um fótspor eru geymdar í vafranum þínum og framkvæma aðgerðir eins og að þekkja þig þegar þú kemur aftur á vefsíðu okkar og hjálpa teymi okkar að skilja hvaða hluta vefsíðunnar þér finnst áhugaverðast og gagnlegast.