Á héraðsþingi HSK, sem haldið var í Þorlákshöfn 23. febrúar sl., störfuðu 5 nefndir sem fjölluðu um ýmis mál er varða hreyfinguna.
Alls voru 25 tillögur samþykktar á héraðsþinginu og margar þeirra tengdust mótahaldi HSK og heildarstigatöflu. Samþykkt var ný reglugerð um héraðsmót í handknattleik, og þá var samþykkt að bæta við héraðsmótum inn á heildarstigatöflu HSK í golfi, handknattleik, taekwondo og judó. Samþykktir þingsins má sjá í þinggerð sem hefur verið sett á vef HSK, www.hsk.is
Hér að neðan er greint frá nokkrum þeirra tillagna sem samþykktar voru á þinginu.