Tilraunatúrbína sett upp á Stórhöfða
Fyrirtækið IceWind samdi á dögunum við Vestmannaeyjabæ og Siglingadeild Vegagerðarinnar um uppsetningu á tilraunatúrbínu á Stórhöfða í Vestmannaeyjum. Stórhöfði getur verið algjört veðravíti og telst á meðal vindasömustu svæðum á norðurhveli Jarðar. Stórhöfðinn er staður í 122 m hæð yfir sjó, syðsta byggða ból á Íslandi og þar sem vindhraði getur farið yfir 60 m/sek.
IceWind CW-1000 vindtúrbínan gefur af sér 1000W í 10 m/sek., hentar vel fyrir heimili, sumarbústaði og jafnvel bóndabæi og sér þér fyrir upphitun eða raforkuþörf. Tvinnuð saman við varmadælu getur túrbínan séð meðalstórum sumarbústaði fyrir upphitun og raforkuþörf, hvort sem tenging er til staðar við raforkulandsnetið eða ekki. IceWind CW-1000 túrbínan er hönnuð til að falla vel inn í umhverfið. Hún er nær hljóðlaus, hefur ekki áhrif á fuglalíf og kemur í nokkrum litaútfærslum.
Hefur fyrirtækið Icewind undanfarið verið að þróa litlar vindtúrbínur sem henta minni einingum. Er Sæþór Ásgeirs­son, hjá Icewind frum­kvöðullinn.
�??�?etta byrjaði sem verk­efni í vél­ar­verk­fræði í Há­skóla Íslands. Við átt­um að hanna og smíða vind­hraðamæli. �?g ákvað síðar að at­huga hvort vind­hraðamæl­ir­inn gæti fram­leitt raf­magn og þetta er ávöxt­ur­inn af því,�?� seg­ir Sæþór.
Hann hóf hönn­un­ina árið 2008 og síðan hef­ur hug­mynd­in verið í þróun. Hann stofnaði svo fyr­ir­tækið Icewind árið 2012. �??�?etta hef­ur verið gert með skóla og ann­arri vinnu svo á síðasta ári fór allt á fullt. Sér­stak­lega eft­ir að við feng­um góðan styrk frá Íslands­banka. Svo feng­um við góðan styrk frá Rannís sem gerði það að verk­um að við gát­um ein­beitt okk­ur al­veg að þessu,�?� seg­ir Sæþór.

Nýjustu fréttir

Safna fyrir innileikvelli fyrir börn 
85 ára saga Rauða krossins í Eyjum – opið hús í Arnardrangi á sunnudag
Skýr skilaboð frá flokksmönnum 
Framtíðarsýn og grunngildi – Hvert erum við að fara?
Landeyjahöfn – Þurfum öflugt dæluskip
Viljum frekar byggja upp en að rífa niður 
Dæluskipið Álfsnes á Bíldudal
Ótrúlegt að 1.200 manns taki þátt í prófkjöri í svona litlu samfélagi 
Eyjafréttir
Friðhelgisyfirlýsing

Þessi vefsíða notar fótspor til að við getum veitt þér bestu notendaupplifun. Upplýsingar um fótspor eru geymdar í vafranum þínum og framkvæma aðgerðir eins og að þekkja þig þegar þú kemur aftur á vefsíðu okkar og hjálpa teymi okkar að skilja hvaða hluta vefsíðunnar þér finnst áhugaverðast og gagnlegast.