Tók tíu ár að fá alþjóðlega vottun sem fjallaleiðsögumaður
Bjartur Týr sækir hugarró í að klifra 1.000 metra háa veggi. Aðsend mynd að mbl.is

Eyjamaðurinn, Bjartur Týr Ólafsson er einn fjögurra Íslendinga sem geta titlað sig sem alþjóðlega fjallaleiðsögumenn eftir að hafa lokið námi við sænskan skóla í vor. Hann er búsettur stærsta hluta ársins í Chamonix í frönsku ölpunum, beint undir Mont Blanc.

Frá þessu segir á mbl.is í dag og sagt að strangar kröfur séu gerðar til þeirra sem ná þessum áfanga. „Alls tók það hann um 10 ár að tryggja sér IFMGA-vottunina því til að geta sótt um námið þurfti hann að uppfylla ákveðnar forkröfur. Hann þurfti að geta klifrað eftir ákveðnu erfiðleikastigi og skíðað brekkur með ákveðnum bratta og erfiðleikastigi. Náminu er skipt upp í nokkra flokka, eða ísklifur, klettaklifur, alhliða fjallamennsku og skíði,“ segir á mbl.is.

„Það þarf að komast á frekar háan standard í þessum flokkum og það tekur að lágmarki fimm ár. Maður klórar sig í gegnum það meðan maður er að ferðast og skíða. Þetta var eins konar fjársjóðsleit, maður var að finna leiðir sem myndu falla í þessa flokka og ferðast eftir þeim,” greinir Bjartur Týr frá spurður nánar út í námið.

Nánar á mbl.is

 

Ólafur Týr er ekki lofthræddur eins og sést á þessari mynd. Aðsend á mbl.is

Nýjustu fréttir

Sjö ferðir Herjólfs falla niður vegna viðhalds
Herjólfur til Landeyjahafnar í dag og Þorlákshafnar á morgun
Þrjár ólögmætar uppsagnir kalla á skýr svör
Vinnslustöðin á erlendum vettvangi
„Vestmannaeyjar eru til fyrirmyndar“
Hljómey og Vestmannaeyjabær framlengja samstarfið
Loðnuráðgjöf lækkar úr 358 þúsund tonnum í tæp 106 þúsund
Óvenjudjúp lægð í spákortum – gul viðvörun á Suðurlandi
viðburðir
Atvinna
13. október 2026
17:15
Íbúaþing um atvinnustefnu í Eldheimum
Eyjafréttir
Friðhelgisyfirlýsing

Þessi vefsíða notar fótspor til að við getum veitt þér bestu notendaupplifun. Upplýsingar um fótspor eru geymdar í vafranum þínum og framkvæma aðgerðir eins og að þekkja þig þegar þú kemur aftur á vefsíðu okkar og hjálpa teymi okkar að skilja hvaða hluta vefsíðunnar þér finnst áhugaverðast og gagnlegast.