Svavar Steingrímsson, pípulagningameistari, lífskúnstner með meiru verður með athyglisverða sýningu í Svölukoti við Strandveg um goslokahelgina. Sýningin verður opnuð klukkan 18.00 á fimmtudaginn og kallast Umbrotatímar með Svabba Steingríms sem eru ljósmyndir sem Svavar tók í gosinu 1973. Sindri Ólafsson, dóttursonur Svavars valdi myndirnar í samráði við afa sinn og vann þær undir prentun.
„Í allt eru þetta um 600 myndir sem ég tók í gosinu og ætlaði mér aldrei að gera neitt með þær en Sindri sagði að þarna væri fróðleikur sem þyrfti að koma fram áður en ég hrekk upp af. Við völdum 46 eða 47 myndir sem Sindri hefur hreinsað og eru þær að koma úr prentun,“ sagði Svavar sem er hinn sprækasti þrátt fyrir að vera kominn á níræðisaldurinn. Gengur reglulega á Heimaklett og finnur sér ýmislegt til dundurs annað en að láta sér leiðast.
„Ég eignaðist myndavél mjög snemma en varð aldrei húkkt á því að taka ljósmyndir eins og Palli bróðir,“ sagði Svavar og á þarna við Pál bróður sinn, myndlistarmann, ljósmyndara og kvikmyndagerðarmann með meiru.
Fyrstu myndirnar í gosinu tók Svavar gosnóttina þegar hann aðstoðaði við að bjarga búslóðinni á Oddsstöðum sem var eitt af húsunum sem stóð næst gossprungunni. Næstu dagar fóru í búslóðaflutninga og vinnu uppi á landi. Þegar í ljós kom að það vantaði pípara til Eyja dreif hann sig út með Þorleifi Sigurlássyni, samstarfsmanni í pípulögnunum og stóð svo vaktina allt gosið.
„Ég átti tvær vélar en lagði annarri eftir fyrstu nóttina og notaði hina, Minoltavél sem reyndist mér vel en endtist gosið og svo ekki söguna meir. Allt eru þetta „slightsmyndir“ og teknar á öllum stigum gossins. Sindri er búinn að hreinsa þær og laga og er það mjög vel gert. Er allt annað sjá myndirnar. Þarna eru líka nokkrar loftmyndir sem ég tók þegar ég fékk að fljóta með Lofti Harðarsyni, flugmanni sem átti flugvél á þessum tíma,“ sagði Svavar að endingu og vonast hann til að sjá sem flesta á sýningunni.





















Skráðu þig á fáðu nýjustu tilkynningar fyrst
Ekki liggja fyrir nýjar mælingar
Hvað er sjóveiki?
Sjóveiki er misræmi milli skynfæra líkamans sem senda boð til heilans um hreyfingu – kyrrstöðu.
Þegar einstaklingur er úti á sjó þá nema skynjarar í vökvafylltum gangi í innra eyra hreyfingu og senda boð til heilans að einstaklingur sé á hreyfingu. Augun senda hins vegar boð til heilans um að viðkomandi sé kyrr. Heilinn á erfitt með að vinna úr þessum misvísandi og ósamræmdu upplýsingum og sendir skilaboð til magans um að tæma sig – þ.e. veldur uppköstum.
Einkenni sjóveiki eru þreyta, ógleði, svimi, svitakóf og uppköst.
Góð ráð til að hindra sjóveiki:
Lyf við sjóveiki þ.e. lyf sem slá á einkennin og fást án lyfseðils í apóteki.
Önnur ráð:
Hvar í skipinu er best að vera o.fl.
Þungun:
Þungaðar konur sem þjást af sjóveiki mega nota koffinátín í litlum skömmtum en best er að ráðfæra sig við lækni eða lyfjafræðing.
Þunguðum konum er ekki ráðlagt að nota engifer þar sem það er ekki staðfest hvort það geti haft skaðleg áhrif á fóstur.