Undirbúningur hafinn fyrir Goslokahátíð
Frá Goslokahátíðinni.

Undirbúningur fyrir Goslokahátíð 2025 er nú hafinn, en í janúar voru 52 ár liðin frá því að gos hófst á Heimaey. Í frétt á heimasíðu bæjaryfirvalda segir að Goslokahátíðin verði á sínum stað dagana 2.-6. júlí þar sem lagt verður upp með fjölbreytta dagskrá fyrir alla aldurshópa.

Goslokanefnd fyrir árið 2025 hefur nú formlega tekið til starfa og í henni sitja Erna Georgsdóttir formaður nefndarinnar, Magnús Bragason, Birgi Níelsen, Dóra Björk Gunnarsdóttir og Súsanna Georgsdóttir. Með nefndinni starfar Drífa Gunnarsdóttir, framkvæmdastjóri stjórnsýslu- og fjármálasviðs og Jóhann Jónsson, forstöðumaður Þjónustumiðstöðvar.

Óskar nefndin eftir samstarfi við einstaklinga/og eða fyrirtæki sem áhuga hafa á að koma að hátíðinni, hvort heldur sem er með hugmyndum, ábendingum, spurningum eða öðru viðeigandi. Hægt er að hafa samband í gengum tölvupóst goslok@vestmannaeyjar.is eða í síma 488-2000.

Nýjustu fréttir

ÍBV tapaði á heimavelli gegn Fram
ÍBV byrjar Olís deildina á sigri
Dreymir um að verða fótboltamaður
Björt hlakkar til að læra að lesa
COWI annast umhverfismat vegna stórskipakants
Tvöföld ÍBV-veisla í dag
Ólöf María snýr aftur í ÍBV og gerir tveggja ára samning
Eyjasamfélagið heillaði mig strax
Eyjafréttir
Friðhelgisyfirlýsing

Þessi vefsíða notar fótspor til að við getum veitt þér bestu notendaupplifun. Upplýsingar um fótspor eru geymdar í vafranum þínum og framkvæma aðgerðir eins og að þekkja þig þegar þú kemur aftur á vefsíðu okkar og hjálpa teymi okkar að skilja hvaða hluta vefsíðunnar þér finnst áhugaverðast og gagnlegast.