�?tgáfutónleikar á laugardaginn
Á síðasta ári gaf Snorri Jónsson, út diskinn Nornanótt með lögum við texta sem hann hefur samið að undanförnu. Fékk hann úrvalslið listamanna, flesta úr Eyjum til liðs við sig. �?ll lögin nema eitt eru frumsamin og komu þar margir að verki. Nornanóttin hefur fengið góðar viðtökur og þann sjötta febrúar nk. verða útgáfutónleikar á Háloftinu þar sem mætir vösk sveit tónlistarmanna með söngvarana Sunnu Guðlaugsdóttur og Sæþór Vídó í broddi fylkingar.
�?au eins og aðrir sem koma fram á tónleikunum komu að gerð disksins. �?au eru auk Sunnu og Sæþórs, Birgir Nielsen á trommur, Kristinn Jónsson á bassa, Gísli Stefánsson á gítar, �?órir �?lafsson á hljómborð og á trompet er Einar Hallgrímur Jakobsson, básúnu Heimir Ingi Guðmundsson og saxafón Matthías Harðarson. Um bakraddir sjá Jarl Sigurgeirsson, Gísli Stefánsson, �?órir �?lafsson og Sæþór Vídó.
Snorri sagðist vera mjög spenntur fyrir tónleikunum og það hefði verið mjög gaman að vinna með þessu fólki. �??�?að sem er kannski mest gaman er að þetta eru allt utan einn, listafólk héðan úr Vestmannaeyjum en það er sá ágæti maður Heimir Ingi sem spilar á sleðabásúnu sem við fengum lánaðan af fasta landinu. Já, við erum með alvöru brass- og bakraddir.�??
Hann sagðist vera mjög ánægður með viðtökurnar sem Nornanóttin hefur fengið og þar skipti miklu fagmannleg vinnubrögð. Lagahöfundar eru Sigurjón Ingólfsson, Geir Reynisson, Sigurður �?skarsson, Leó �?lason og Sæþór. �??Gísli Stefánsson stjórnaði upptökum og hann ásamt Sæþóri útsetti lögin en textarnir eru eftir mig,�?? segir Snorri sem er enginn nýgræðingur á þessu sviði.

Nánar í nýjasta tölublaði Eyjafrétta.

Nýjustu fréttir

Fleiri skólar gætu tekið upp Kveikjum neistann 
Safnahelgin sett í Stafkirkjunni í dag
Herjólfur siglir til Þorlákshafnar
Eyjamenn geta aukið forskotið á Víking í kvöld
„Mig langar eiginlega bara að verða söngvari“
Sigurður Arnar kveður ÍBV og semur við Val
Trúnaður má ekki verða skjól fyrir þögn
Gular veðurviðvaranir fyrir Suðurland og Faxaflóa
Eyjafréttir
Friðhelgisyfirlýsing

Þessi vefsíða notar fótspor til að við getum veitt þér bestu notendaupplifun. Upplýsingar um fótspor eru geymdar í vafranum þínum og framkvæma aðgerðir eins og að þekkja þig þegar þú kemur aftur á vefsíðu okkar og hjálpa teymi okkar að skilja hvaða hluta vefsíðunnar þér finnst áhugaverðast og gagnlegast.