Útlit fyr­ir að meira mæl­ist í loðnu­leiðangri
Vsv Lodna3
Markmið leiðangursins er að meta magn bæði ókynþroska og kynþroska loðnu á svæðinu milli Íslands, Austur-Grænlands og Jan Mayen.

Útlit er fyr­ir að meira mæl­ist af kynþroska loðnu í leiðangri sem nú stend­ur yfir, held­ur en í loðnu­mæl­ing­um í síðasta mánuði.

Guðmund­ur J. Óskars­son, sviðsstjóri á upp­sjáv­ar­sviði Haf­rann­sókna­stofn­un­ar, tel­ur þó að ekki sé tíma­bært að tala um ein­hvern kvóta, magnið sé ekki slíkt enn sem komið er. Niður­stöðurn­ar verða metn­ar í næstu viku að leiðangr­in­um lokn­um.

Auk rann­sókna­skips­ins Árna Friðriks­son­ar hafa Aðal­steinn Jóns­son SU og græn­lenska skipið Pol­ar Amar­oq tekið þátt í mæl­ing­um, en Börk­ur NK og Mar­grét EA leitað loðnu til að af­marka út­breiðsluna. Árni varð var við ung­loðnu vest­ur af Vest­fjörðum og hærra hlut­fall af veiðiloðnu var norður af Horni. Pol­ar og Aðal­steinn urðu var­ir við hrygn­ing­ar­loðnu við land­grunnskant­inn aust­ur og norðaust­ur af Langa­nesi og ung­loðnu í Héraðsdýpi.

Framund­an er að leita á Kol­beins­eyj­ar­svæðinu þar sem oft hef­ur verið loðna á þess­um árs­tíma, að því er fram kem­ur í Morg­un­blaðinu í dag.

Nýjustu fréttir

Ófullnægjandi dýpi í Landeyjahöfn
Ekki einhugur um milljóna framlag til ÍBV
Loðnuvertíðin hafin í Eyjum
Heiðurshjónin Hjalti og Vera Björk Eyjafólk ársins 2025
Elmar áfram hjá Nordhorn-Lingen
Róbert hjá ÍBV næstu tvö árin
Framkvæmdir langt komnar í Íþróttamiðstöðinni
Skákþing Vestmannaeyja: Úrslitin ráðast í síðustu umferðunum
Eyjafréttir
Friðhelgisyfirlýsing

Þessi vefsíða notar fótspor til að við getum veitt þér bestu notendaupplifun. Upplýsingar um fótspor eru geymdar í vafranum þínum og framkvæma aðgerðir eins og að þekkja þig þegar þú kemur aftur á vefsíðu okkar og hjálpa teymi okkar að skilja hvaða hluta vefsíðunnar þér finnst áhugaverðast og gagnlegast.