Veðurviðvaranir um land allt
Skjáskot/vedur.is

Veðurstofa Íslands hefur gefið út viðvaranir fyrir landið allt. Gildir gula viðvörunin fyrir landið allt frá 3. júní kl. 00:00 – 4. júní kl. 00:00.

Í viðvörunarorðum segir: Norðan hvassviðri eða stormur, hvassast á vestanverðu landinu og sunnan undir Vatnajökli. Huga þarf að lausamunum og aðstæður geta verið varasamar fyrir ökutæki sem taka á sig mikinn vind. Einnig verður talsverð úrkoma norðaustan- og austantil, líklega snjókoma til fjalla sem valdið getur afmörkuðum samgöngutruflunum.

Í nýrri spá fyrir Suðurland segir: Vestan og suðvestan 3-10 og rigning með köflum. Hiti 6 til 10 stig. Gengur í norðan 10-18 á morgun, úrkomulítið og kólnar heldur.

Veðurhorfur á landinu næstu daga

Á þriðjudag:
Norðan 13-23 m/s, hvassast í vindstrengjum á suðurhelmingi landsins. Snjókoma eða slydda norðan- og austantil um morguninn, en síðan talsverð rigning á láglendi og slydda eða snjókoma til fjalla. Úrkomuminna sunnan heiða. Hiti 1 til 10 stig, kaldast í innsveitum norðanlands.

Á miðvikudag:
Norðan 8-15 m/s, hvassast við austur- og vesturströndina. Rigning, en þurrt að kalla á sunnanverðu landinu. Hiti 2 til 12 stig, hlýjast á Suðausturlandi.

Á fimmtudag:
Norðan 5-13 m/s og rigning eða slydda á Norður- og Austurlandi, en bjartviðri sunnan heiða. Hiti breytist lítið.

Á föstudag:
Minnkandi norðanátt og dálítil rigning norðantil, en skúrir á sunnanverðu landinu. Áfram kalt í veðri.

Á laugardag:
Norðlæg eða breytileg átt og víða dálítil rigning eða skúrir.
Spá gerð: 01.06.2025 08:47. Gildir til: 08.06.2025 12:00.

 

Hugleiðingar veðurfræðings

Í dag færist regnsvæði yfir landið úr vestri og búast má við rigningu af og til í flestum landshlutum. Hvergi er þó búist við mikilli úrkomu. Vindur verður áfram fremur hægur og áttin vestlæg eða breytileg. Hiti 6 til 13 stig.

Á morgun (mánudag) gengur í norðan stinningskalda. Búast má við rigningu eða slyddu með köflum á norðanverðu landinu og snjókoma á heiðum og til fjalla. Úrkoman mestmegnis á formi rigningar austanlands fram á kvöld, en síðan gæti hún orðið slyddukennd þar. Suðvestantil verður væntanlega engin úrkoma. Það kólnar í veðri og annað kvöld er hita spáð frá frostmarki í innsveitum fyrir norðan, upp í 7 stig við suðurströndina.

Á þriðjudag hvessir síðan en frekar, þá er útlit fyrir allhvassa eða hvassa norðanátt og jafnvel stormur á stöku stað í vindstrengjum á suðurhelmingi landsins. Búast má við talsverðri rigningu á láglendi norðan- og austanlands og slyddu eða snjókomu til fjalla. Úrkomuminna sunnan heiða. Hiti 2 til 10 stig, kaldast í innsveitum norðanlands.

Það stefnir semsagt í júníhret fyrripart næstu viku og í gær var byrjað að senda út viðvaranir vegna þess. Líklegt er að í dag muni fjölga viðvörunum og þeim verði svæðaskipt, en slíkt er gert þegar styttra er í atburðinn og spár verða vissari.
Spá gerð: 01.06.2025 06:43. Gildir til: 02.06.2025 00:00.

Nánar um veðrið.

Nýjustu fréttir

Minnisvarði um Þór gæti fengið nýjan stað
Áfram Noregur í kvöld – Heimisáhrifin virka
Draumurinn orðinn að veruleika
Einstakt safn Magnúsar vakti forvitni á Goslokahátíð
Þrjár vikur í Þjóðhátíð – uppbyggingin hafin í Herjólfsdal
Sumarlesturinn hefur aldrei farið betur af stað
Áform um þrjú ný einbýlishús við Reglubraut
Evrópusambandið, meira en tollabandalag
Eyjafréttir
Friðhelgisyfirlýsing

Þessi vefsíða notar fótspor til að við getum veitt þér bestu notendaupplifun. Upplýsingar um fótspor eru geymdar í vafranum þínum og framkvæma aðgerðir eins og að þekkja þig þegar þú kemur aftur á vefsíðu okkar og hjálpa teymi okkar að skilja hvaða hluta vefsíðunnar þér finnst áhugaverðast og gagnlegast.