Veglegur styrkur í rauðátu-verkefnið
raudatu_leidangur_24_ads_cr
Frá rauðátuleiðangri Bjarna Sæmundssonar nýverið. Ljósmynd/aðsend.

Bjarkey Gunnarsdóttir Olsen matvælaráðherra hefur úthlutað um 491 milljónum króna úr Matvælasjóði. Alls hljóta 46 verkefni styrk en 198 umsóknir bárust til sjóðsins.

„Matvælasjóður spilar lykilhlutverk til að frjóar hugmyndir og lífvænleg verkefni í matvælaframleiðslu og -vinnslu nái að dafna og vaxa“ segir matvælaráðherra. „Það er jafnframt gleðiefni að sjá að úthlutanir dreifast nokkuð jafnt á milli kynja og að skipting milli höfuðborgarsvæðis og landsbyggðar er í góðu jafnvægi“.

segir Bjarkey Gunnarsdóttir Olsen matvælaráðherra í tilkynningu frá matvælaráðuneytinu.

Meðal verkefna sem hlaut styrk er rauðátu-verkefnið sem staðið hefur yfir undanfarin ár hér við Eyjar. Það er fyrirtækið Rauðátan ehf. sem hlýtur styrkinn fyrir veiðar og vinnslu á rauðátu í Vestmannaeyjum. Styrkupphæðin hljóðar upp á 23.250.000 kr. Í lok maí var rannsóknarskipið Bjarni Sæmundsson gert út til rannsóknar á rauðátunni og má lesa um þann túr hér neðar á síðunni. 

Hlutverk Matvælasjóðs er að styrkja þróun og nýsköpun við framleiðslu og vinnslu matvæla og hliðarafurða úr landbúnaðar- og sjávarafurðum. Áhersla er á nýsköpun, sjálfbærni, verðmætasköpun og samkeppnishæfni íslenskra matvæla. Sjóðnum er einnig heimilt að styðja við vöruþróun og markaðssókn á erlendum mörkuðum. Sjóðurinn fylgir eftir heimsmarkmiðum Sameinuðu þjóðanna. Í þessum tilgangi styrkir sjóðurinn verkefni og rannsóknir einstaklinga og lögaðila.

Hér má sjá lista yfir allar styrkveitnigarnar úr sjóðnum.

https://eyjar.net/vorum-ad-fa-allt-ad-500-kg-a-togtima/

Nýjustu fréttir

Óvenjulegar eignfærslur og tafir á afhendingu gagna
Opið hús hjá Krabbavörn
Fermingar á næsta leyti
Bent kemur fram á Hljómey!
Skyndihjálparnámskeið hjá Visku um helgina
Útför: Einar Birgir Sigurjónsson
Elís Þór æfði með A-landsliðinu
Treysti sér ekki til að vera heima og horfa á leikinn
Eyjafréttir
Friðhelgisyfirlýsing

Þessi vefsíða notar fótspor til að við getum veitt þér bestu notendaupplifun. Upplýsingar um fótspor eru geymdar í vafranum þínum og framkvæma aðgerðir eins og að þekkja þig þegar þú kemur aftur á vefsíðu okkar og hjálpa teymi okkar að skilja hvaða hluta vefsíðunnar þér finnst áhugaverðast og gagnlegast.