Fyrstu helgina í júlí höldum við Eyjamenn upp á goslokin og líkt og undanfarin ár verður vegleg goslokahátíð haldin. Vestmannaeyjabær leggur mikinn metnað í að hátíðin verði sem vönduðust og miklu hefur verið kostað til.
“Efni og andi í byggingarlist” – sýning á verkum Högnu Sigurðardóttur arkitekts, “Vísur úr vísnabókinni” fjölskyldutónleikar Gunnars Þórðarsonar og félaga, ásamt völdu tónlistarfólki úr Eyjum. Frumsamið lag hátíðarinnar, opnun Surtseyjarstofu, stórtónleikar í Höllinni, hefðbundin kvöldhátíð í Skvísusundi og margt fleira.