Verið að skikka fólk til að vinna næturvinnu
�??Sjómenn á Herjólfi eru í yfirvinnubanni þannig að það á að skikka fólk til að vinna næturvinnu um borð í Herjólfi. Við höfum reynt að ná í stjórnarþingmenn en þeir eru allir í felum. Við höfum óskað eftir fundi í samgöngunefnd en þeir sjá ekki ástæðu til að tala við okkur. �?annig að það er verið að setja lög á Herjólf en ráðamenn þjóðarinnar hafa ekki talað við samninganefnd Herjólfsmanna,�?? segir Jónas Garðarsson hjá Sjómannafélagi Íslands í samtali við Vísi.is.
Á ríkisstjórnarfundi í morgun var samþykkt að leggja fram lagafrumvarp þess efnis að verkfalli undirmanna verði frestað til 15. september og fái deiluaðilar þann tíma til að komast að samkomulagi. Jónas segir ennfremur á Vísi að sjómenn séu ósáttir við þessa ákvörðun. �??Fólkið á Herjólfi á rétt á sambærilegum kjarabótum og félagar þeirra sem vinna sambærileg störf á öðrum skipum. �?að er það sem verið er að fara fram á.�??

Nýjustu fréttir

Segja forsendur útboðs heilsuræktar hafa breyst verulega
ÍBV tekur á móti ÍR
Óvenjulegar eignfærslur og tafir á afhendingu gagna
Opið hús hjá Krabbavörn
Fermingar á næsta leyti
Bent kemur fram á Hljómey!
Skyndihjálparnámskeið hjá Visku um helgina
Útför: Einar Birgir Sigurjónsson
Eyjafréttir
Friðhelgisyfirlýsing

Þessi vefsíða notar fótspor til að við getum veitt þér bestu notendaupplifun. Upplýsingar um fótspor eru geymdar í vafranum þínum og framkvæma aðgerðir eins og að þekkja þig þegar þú kemur aftur á vefsíðu okkar og hjálpa teymi okkar að skilja hvaða hluta vefsíðunnar þér finnst áhugaverðast og gagnlegast.