Viðar Stefánsson ráðinn prestur
Viðar Stefánsson, 26 ára gamall guðfræðingur frá Gnúpverjahreppi í Árnessýslu, hefur verið ráðinn prestur við Landakirkju, Vestmannaeyjaprestakalli frá og með 1. september 2016. �?etta var niðurstaða valnefndar sem sat að störfum í gær og tók viðtöl við þá fjóra umsækendur sem sóttu um starfið. Frú Agnes M. Sigurðardóttir biskup Íslands staðfesti svo val nefndarinnar fyrr í dag.
Viðar hefur starfað sem leiðtogi í barnastarfi m.a. í Skálholti og í Áskirkju í Reykjavík og hefur starfað sem áfengis- og vímuefnaráðgjafi hjá SÁÁ undanfarna mánuði. �?essa stundina leggur hann stund á sálgæslufræði á framhaldsstigi hjá Endurmenntun Háskóla Íslands.
Um leið og við bjóðum Viðar velkomin til starfa þökkum við Sr. �?rsúlu Árnadóttur fyrir velunnin störf en hún hefur leyst af í Landakirkju frá því síðastliðið haust. Störf sín hefur hún unnið af alúð og myndugleika.

Nýjustu fréttir

Þóra Guðný og Svenni um bygginarframkvæmdina  
Gular viðvaranir víðast hvar
Ófært til lands – uppfært
Gyllta flóran keppir fyrir hönd Féló
Bíða enn eftir alvöru vertíðarstemmningu
Ferðaþjónustan er öflug atvinnugrein sem þarf tryggar samgöngur
Gul viðvörun á Suðurlandi: Búist við þrumuveðri
Evrópudagur talþjálfunar er í dag
Eyjafréttir
Friðhelgisyfirlýsing

Þessi vefsíða notar fótspor til að við getum veitt þér bestu notendaupplifun. Upplýsingar um fótspor eru geymdar í vafranum þínum og framkvæma aðgerðir eins og að þekkja þig þegar þú kemur aftur á vefsíðu okkar og hjálpa teymi okkar að skilja hvaða hluta vefsíðunnar þér finnst áhugaverðast og gagnlegast.