Appelsínugul veðurviðvörun verður í gildi í dag á höfuðborgarsvæðinu, Suðurlandi, Faxaflóa, Vestfjörðum, Austfjörðum, Suðausturlandi og Miðhálendinu. Gul veðurviðvörun verður í gildi á Ströndum, Norðurlandi vestra, Norðurlandi eystra og Austurlandi að Glettingi. Meðal vindhraði fór í 30 m/s á Stórhöfða klukkan sjö í morgunn og 42 m/s í hviðum. Herjólfur fór fyrri ferð sína í morgunn til Þorlákshafnar en von er á tilkynningu fyrir kl. 15:00 í dag hvað varðar seinni ferðina.
Á Suðurlandi er spáð suðvestan 20 til 28 metrum á sekúndu. Mjög snarpar vindhviður verða við fjöll, allt að 40 metrar á sekúndu undir Eyjafjöllum. Lélegt skyggni verður og slæmt ferðaveður á meðan viðvörunin er í gildi. Fólki er bent á að huga að lausum munum.
Skráðu þig á fáðu nýjustu tilkynningar fyrst