Vildu fá öflugri verktaka til verksins
alfsnes_vegagerdin_24_is
Álfsnesið í Landeyjahöfn. Ljósmynd/Vegagerðin

Í dag kom fram að ekki standi til hjá Vegagerðinni að segja upp samningi stofnunarinnar við Björgun um dýpkun Landeyjahafnar. Eitt ár er eftir af samningnum.

Bæjarstjórn Vestmannaeyja tók málið fyrir á fundi sínum í dag, en skýrt hefur komið fram hjá bæjaryfirvöldum að Vegagerðin grípi til aðgerða gagnvart dýpkunaraðila í Landeyjahöfn vegna vanefnda á samningi.

Mikil vonbrigði

Í sameiginlegri bókun bæjarstjórnar segir að Vestmannaeyjabær hafi ítrekað lýst yfir óánægju við Vegagerðina með dýpkunarmálin í Landeyjahöfn. Verktakafyrirtækið sem sinnir dýpkun hefur ekki uppfyllt samning um dýpkun sem skyldi og hefur bæjarráð farið fram á  það við Vegagerðina að hún grípi til aðgerða vegna vanefnda á samningi.

Vegagerðin hefur nú tilkynnt að samningi við Björgun verði ekki sagt upp en aðgerðaáætlun fyrirtækisins um bætt afköst og aðrar umbætur verður gerð að viðauka við samninginn.

Bæjarstjórn lýsir miklum vonbrigðum með að ekki hafi verið gripið til þess að rifta samningi við dýpkunaraðila og fá öflugri verktaka til verksins. Við þessa niðurstöðu verðum við að vona að dýpkunaraðilinn fylgi eftir þessum viðauka með bættum vinnubrögðum, svo siglingar til Landeyjahafnar truflist ekki vegna lélegs undirbúnings á því að taka að sér verk sem þetta.

https://eyjar.net/bjorgun-afram-treyst-fyrir-dypkun/

Nýjustu fréttir

Róbert hjá ÍBV næstu tvö árin
Framkvæmdir langt komnar í Íþróttamiðstöðinni
Skákþing Vestmannaeyja: Úrslitin ráðast í síðustu umferðunum
Yfir 90% íbúa ánægðir
Bríet kemur fram á Hljómey
Sæunn Magnúsdóttir gengur til liðs við Miðflokkinn
Framkvæmdir hafnar við Áshamar 77  
Dýptarmælingar fyrirhugaðar í Landeyjahöfn
Eyjafréttir
Friðhelgisyfirlýsing

Þessi vefsíða notar fótspor til að við getum veitt þér bestu notendaupplifun. Upplýsingar um fótspor eru geymdar í vafranum þínum og framkvæma aðgerðir eins og að þekkja þig þegar þú kemur aftur á vefsíðu okkar og hjálpa teymi okkar að skilja hvaða hluta vefsíðunnar þér finnst áhugaverðast og gagnlegast.