Vilmar ráðinn framkvæmdastjóri handknattleiksdeildar ÍBV
Vilmar Þór Bjarnason. Mynd/ÍBV handbolti

Vilmar Þór Bjarnason hefur verið ráðinn framkvæmdastjóri handknattleiksdeildar ÍBV. Hann tekur við af Þorláki Sigurbirni Sigurjónssyni, sem hefur sinnt starfinu um nokkurt skeið.

Vilmar Þór er öllum hnútum kunnugur hjá ÍBV en hann starfaði sem framkvæmdastjóri deildarinnar á árunum 2019-2023.

Í tilkynningu ÍBV segir: ,,Á sama tíma og handknattleiksráð vill þakka Þorláki fyrir sín störf sem framkvæmdastjóri þá viljum við bjóða Vilmar hjartanlega velkominn aftur”.

Handknattleiksráð ÍBV er gríðarlega ánægt með að Vilmar sé kominn aftur og hlakkar til samstarfsins. 

Nýjustu fréttir

Þetta er mögnuð íþrótt sem allir geta spilað
Bærinn ósammála ráðuneytinu í þremur uppsagnarmálum
Bleikt boð hjá Krabbavörn Vestmannaeyja
Smári Jökull hjá Sýn 
Sjálfkeyrandi bílar í Eyjum? Ráðherra tekur jákvætt í hugmyndina
Ítalía mun alltaf eiga sérstakan stað í hjartanu
Vestmannaeyjabær óskar eftir niðurstöðum úr PISA
Sæðisprufan hans Sigurgeirs vakti mikla kátínu
Eyjafréttir
Friðhelgisyfirlýsing

Þessi vefsíða notar fótspor til að við getum veitt þér bestu notendaupplifun. Upplýsingar um fótspor eru geymdar í vafranum þínum og framkvæma aðgerðir eins og að þekkja þig þegar þú kemur aftur á vefsíðu okkar og hjálpa teymi okkar að skilja hvaða hluta vefsíðunnar þér finnst áhugaverðast og gagnlegast.