Vinnuhóp falið að útfæra skipulag á Básaskersbryggju

Á fundi framkvæmda- og hafnarráðs Vestmannaeyja í liðinni viku gerðu starfsmenn umhverfis- og framkvæmdasviðs grein fyrir fundi sem þau sátu með Vegagerðinni þann 5. júní síðastliðinn um skipulag og hugmyndir varðandi Básaskersbryggju.

Ráðið ákvað að skipa vinnuhóp til að útfæra framtíðarskipulag á Básaskersbryggju. Í hópnum skulu sitja formaður ráðsins, framkvæmdastjóri sviðsins, hafnarstjóri og bæjarstjóri. Þá er óskað eftir að stjórn Herjólfs ohf. skipi einn aðila fyrir sína hönd. Hópurinn skal kynna framgang vinnunar á næsta áætlaða fundi framkvæmda- og hafnarráðs.

20240612_065550
Nýtt athafnasvæði fyrir flutningavagna á Básaskersbryggju.

Nýjustu fréttir

Ný bæjarstjórn tekur til starfa í dag – fundurinn í beinni
Hvers vegna segja svona margir það sama?
Sköpunarhúsið áfram opið í sumar 
Tónleikar og skemmtun í Höllinni um helgina
Innviðaráðherra og forstjóri Vegagerðarinnar heimsóttu borstæði Eyjaganga
Tólf ferðir á dag til og frá Eyjum frá 8. júní – uppfært
Högum okkur
Herjólfur frestar 8 ferða áætlun 
Eyjafréttir
Friðhelgisyfirlýsing

Þessi vefsíða notar fótspor til að við getum veitt þér bestu notendaupplifun. Upplýsingar um fótspor eru geymdar í vafranum þínum og framkvæma aðgerðir eins og að þekkja þig þegar þú kemur aftur á vefsíðu okkar og hjálpa teymi okkar að skilja hvaða hluta vefsíðunnar þér finnst áhugaverðast og gagnlegast.