Vitleysan kostaði sitt
11. ágúst, 2018
Ragnar Óskarsson

Mér hefur alltaf þótt vænt um sameiginlega bæjarsjóðinn okkar, sjóðinn sem við Eyjamenn söfnum m.a. í með útsvarinu okkar og notum til að standa undir ýmiss konar framkvæmdum og þjónustu við bæjarbúa. Ég er auðvitað ekki alltaf sammála hvernig honum er varið en oft nokkuð sáttur.

Nú á dögunum var upplýst að tveggja milljóna króna krafa hefur verið send á bæjarsjóð. Krafan er komin til vegna þess að forystumenn sjálfstæðisflokksins í Vestmannaeyjum neituðu að virða úrslit lýðræðislegra bæjarstjórnarkosninga í vor. Þeir kærðu hin lýðræðisleg úrslit og ætluðu með bolabrögðum og óheilindum að fá niðurstöðunum breytt sér í hag. Þetta sjónarspil þeirra vakti trega hjá mörgum heiðarlegum sjálfstæðismanninum en yfirleitt undraðist fólk og hló að afspyrnu klaufalegri og fáránlegri framgöngu forystunnar.

Auðvitað var þessari dæmalausu kæru synjað og eftir stóðu forystumenn sjálfstæðismanna í Eyjum með allt niður um sig, þeir höfðu orðið að athlægi.

En þar með er ekki öll sagan sögð. Nú liggur sem sé fyrir að bæjarsjóðurinn okkar allra þarf að greiða rúmar tvær milljónir í kostnað vegna vitleysunnar. Við öll eigum að taka þátt í að fjármagna fíflaríið. Við þetta er ég ekki sáttur en ég veit ekki með ykkur hin. Hvað segið þið annars?

Þótt upphæðin sé ekki óyfirstíganleg og setji bæjarsjóð ekki á hausinn er tilurð hennar svo fáránleg að engin leið er að verja að sjálfstæðismenn geti sótt í bæjarsjóð og látið hann greiða fyrir asnaskapinn. Þeir ættu í það minnsta að bjóðast til að greiða kröfuna úr eigin flokkssjóðum og biðja svo bæjarbúa afsökunar á allri vitleysunni.

P.S. Ekki óyfirstíganleg upphæð segi ég. Upphæðin er þó það há að allar útsvarsgreiðslur venjulegs verkamanns í Vestmannaeyjum í 4 ár þarf til að greiða kröfuna.

Ragnar Óskarsson

Facebook
X
LinkedIn
Pinterest
Reddit
Email
Print
Skoða blaðið á netinu
Forsida 5 Tbl EF
5. tbl. 2025

NÝBURAR

76e2af77 02d9 48eb B73a 24c32e2403ac
4. janúar 2025
Drengur
Landspítalinn, Reykjavík.
Katrín Rós Óðinsdóttir og Sæþór Örn Garðarsson.
Mest lesið
Fylgstu með

Skráðu þig á fáðu nýjustu tilkynningar fyrst

Eyjafréttir
Friðhelgisyfirlýsing

Þessi vefsíða notar fótspor til að við getum veitt þér bestu notendaupplifun. Upplýsingar um fótspor eru geymdar í vafranum þínum og framkvæma aðgerðir eins og að þekkja þig þegar þú kemur aftur á vefsíðu okkar og hjálpa teymi okkar að skilja hvaða hluta vefsíðunnar þér finnst áhugaverðast og gagnlegast.