16,8 milljóna króna kostnaður Minjastofnunar
Nákvæm staðsetning minja/fornleifa á rannsóknarsvæðinu. Bláir fletir sýna ungar minjar sem ekki er talin þörf á að kanna frekar að mati höfundar. Rauðir fletir sýnir fornleifar, sem þarf að kanna nánar að mati höfundar sé ekki hægt að tryggja öryggi þeirra. Mynd/Fornleifafræðistofan

Bæjarráð Vestmannaeyja hefur samþykkt verð á nýjum lóðum við Miðgerði sem eru tilkomnar vegna gjalda frá Minjastofnun. Í kjölfarið hefur Vestmannaeyjabær auglýst lausar til umsóknar lóðir við Miðgerði 1–11 og við Helgafellsbraut 22–26. Samkvæmt upplýsingum sem Eyjafréttir kölluðu eftir frá Vestmannaeyjabæ var kostnaður Minjastofnunar við verkið rúmlega 16,8 milljónir króna.

Samkvæmt auglýsingu bæjaryfirvalda eru í boði tvær lóðir fyrir parhús og sex lóðir fyrir einbýlishús við Miðgerði. Hámarks byggingarmagn fyrir tvíbýli er 180 fermetrar á íbúð en 280 fermetrar fyrir einbýli. Byggingarnar geta verið ein til tvær hæðir sunnan við Miðgerði, en ein hæð eða ein hæð og kjallari norðan við götuna.

Þessu tengt: Líklega þörf á frekari fornleifarannsóknum

Við Helgafellsbraut er í boði ein lóð fyrir raðhús með þremur íbúðareiningum, þar sem gert er ráð fyrir einni hæð og hámarks byggingarmagni 170 fermetra á íbúð.

Verð á lóðum við Miðgerði er á bilinu 1,6 til 2 milljónir króna, en lóð við Helgafellsbraut kostar 2,7 milljónir króna. Umsóknarfrestur er til 13. nóvember 2025, og eru umsækjendur hvattir til að kynna sér deiliskipulag og vinnureglur um lóðaúthlutun á vef Vestmannaeyjabæjar.

Nýjustu fréttir

Góð spá og lokaspretturinn hafinn fyrir Þjóðhátíð
Hafbotnsmælingum lokið – Komnir niður á 136 metra í Landeyjasandi
Flugmenn sviptir flugleyfi vegna lágflugs yfir Eyjum
Heildarafli dróst saman um 29 prósent í júní
Lögregla hættir rannsókn á andlátsmálinu á Hraunbúðum
Lóðaumsókn fyrir hvítu tjöldin hafin
Herjólfur kominn í viðgerðarstopp
Eyjakonur töpuðu gegn Þór/KA á Akureyri
Eyjafréttir
Friðhelgisyfirlýsing

Þessi vefsíða notar fótspor til að við getum veitt þér bestu notendaupplifun. Upplýsingar um fótspor eru geymdar í vafranum þínum og framkvæma aðgerðir eins og að þekkja þig þegar þú kemur aftur á vefsíðu okkar og hjálpa teymi okkar að skilja hvaða hluta vefsíðunnar þér finnst áhugaverðast og gagnlegast.