184 þúsund tonna aukning

Hafrannsóknastofnun leggur til að loðnuafli fiskveiðiárið 2022/2023 verði ekki meiri en 459 800 tonn, en það er 184 100 tonna aukning frá síðustu ráðgjöf. Aukning þessi byggir á mælingum úti fyrir Húnaflóa uppúr miðjum febrúar. Það er mat Hafrannsóknastofnunar að loðnan sem þar mældist muni líklegast hrygna á þeim slóðum.

Út frá varúðarsjónarmiðum hvetur stofnunin til þess að afli sem nemur viðbótarráðgjöf verði veiddur sem mest á þeim slóðum. Ef viðbótaraflinn yrði allur tekinn á hefðbundnum slóðum fyrir sunnan og vestan land yrðu allnokkrar líkur á að lítið af loðnu myndi hrygna þar. Með því að ganga ekki of nærri þeirri loðnu sem hrygnir við vestur- og suðurströnd landsins væri verið að leitast við að viðhalda líffræðilegum fjölbreytileika innan stofnsins, auka líkur á góðri nýliðun og gera veiðarnar sjálfbærari. Með öðrum orðum, mælst er til þess að loðnuveiðarnar endurspegli á einhvern hátt dreifingu stofnsins eftir hrygningarsvæðum.

Hafrannsóknastofnun leggur því til að 2/3 af þeim 184 100 tonnum sem nú koma til hækkunar ráðgjafar sem gefin var út 3. febrúar verði veiddur norðan við Ísland á svæðinu frá Horni að Langanesi, eða að minnsta kosti 122 700 tonn.

Hlekkur á ráðgjöf.

Nýjustu fréttir

Lúðrasveitir sameinast með stórstjörnum í Hörpu
Kvennalið ÍBV semur við markmann frá Kanada-Guyana
Tap hjá Arnari og íslenska landsliðinu gegn Færeyjum
Engin lognmolla í nýju starfi
Samgöngur við Vestmannaeyjar – framtíðarsýn eða bráðabirgðalausnir?
Atli Steinn Arnarson semur við ÍBV
World Class mun rísa samhliða búningsklefunum
Skvísubúðin fagnar vori og sumri með fjölbreyttu vöruúrvali 
Eyjafréttir
Friðhelgisyfirlýsing

Þessi vefsíða notar fótspor til að við getum veitt þér bestu notendaupplifun. Upplýsingar um fótspor eru geymdar í vafranum þínum og framkvæma aðgerðir eins og að þekkja þig þegar þú kemur aftur á vefsíðu okkar og hjálpa teymi okkar að skilja hvaða hluta vefsíðunnar þér finnst áhugaverðast og gagnlegast.