Svar við yfirlýsingu

�?á vil ég ítreka það sem fram kom í yfirlýsingu frá mér í sama blaði að ég ber ekki ábyrgð á fréttaflutningi eða framsetningu frétta á Stöð 2, fremur en á öðrum fréttamiðlum. En hafi þó eitthvað það sem ég hefi sagt eða skrifað, fyrr eða síðar, hinsvegar sært einhvern er mér bæði ljúft og […]

Pakkaþjónusta jólasveinanna

Hefur heimsóknin oft á tíðum vakið mikla hrifningu og stundum mikla undrun, sérstaklega þegar börnin hafa ekki haft hugmynd um hver bankaði á dyrnar.Í ár munu jólasveinarnir bjóða upp á þessa þjónustu eins og þeir hafa alltaf gert. Pakkamóttaka verður í Tíbrá, félagsheimili Umf. Selfoss, á �?orláksmessu kl. 18:00-21:00. �?jónustan kostar 1.000 kr. á fjölskyldu. […]

Selfoss í öðru sæti

Heimamenn í HK unnu mótið eins og undanfarin ár. Leikið var í einum fjögurra liða riðli og í fyrstu leikjunum gerðu strákarnir 0-0 jafntefli við Ýmir og Víking �?. Í síðasta leiknum kom Viðar �?rn Kjartansson Selfossliðinu yfir gegn HK en heimamenn jöfnuðu og tryggðu sér þar með efsta sæti riðilsins.Á myndinni eru strákarnir með […]

Hundrað og fimm útgerðarmenn stóðu að stofnun félagsins

Meðal annars er rætt við starfsmenn stöðvarinnar í dag:Stefán Halldórsson og �?ðinn Kristjánsson eru einu starfsmenn viðhaldsdeildar Vinnslustöðvarinnar í dag en sú stefnubreyting varð fyrir nokkrum misserum að fyrirtækið kaupir út þjónustu frá iðnaðarmönnum í bænum í stað þess að vera með þá á launaskrá. En það þarf að halda hlutunum við og sjá um […]

Elsa stefnir á 3. sæti

Elsa er fædd 1966 og býr á Selfossi með tveimur börnum sínum. Hún hefur verið framkvæmdstjóri Heilbrigðiseftirlits Suðurlands frá árinu 2000, þar áður m.a starfað sem heilbrigðisfulltrúi og lífeindafræðingur. Elsa útskrifaðist B.sc, lífeindafræðingur frá Tækniskóla Íslands 1989 og er nú einnig í mastersnámi í opinberri stjórnsýslu við Háskóla Íslands. Elsa hefur setið í stjórn Samtaka […]

Glæsilegur minnisvarði um öflugt félag

�?Mér er engin launung á því, að erfitt er að fylgja þessum skrifum úr hlaði. �?talmargt hefði þurft að vera með, annað er ofsagt, villur eflaust fjölmargar og andi skrifanna og efnistök mér ekki alltaf að skapi. Valið stóð á milli mölsins eða mannfólksins og ég valdi það síðarnefnda. Vonandi geta lesendur fundið einhver minningarbrot […]

Fjórir þingmenn Suðurkjördæmis töluðu minnst

Næstur á undan honum er Gunnar �?rlygsson en hann talaði í samtals 12 mínútur og fór sömuleiðis sex sinnum í ræðupúlt. Í fjórða neðsta sæti er Guðjón Hjörleifsson, sem talaði í 13 mínútur en Guðjón fór fimm sinnum í ræðupúlt Alþingis. �?á talaði Margrét Frímannsdóttir, Samfylkingunni í 14 mínútur en hún fór sjö sinnum í […]

Ítrekað reynt að kveikja í kaffistofu Lifrasamlagsins

Lögreglan óskar eftir öllum upplýsingum, hversu smávægilegar sem þær kunni að vera, varðandi grunsamlegar mannaferðir við Lifrasamlagið. Síðast var gerð tilraun til að kveikja í aðfaranótt 4. desember sl. �?eir sem telja sig hafa upplýsingar sem að gagni gætu komið vinsamlegast hringið í síma 481-1665. (meira…)

Til hvers prófkjör?

Heldur þykir ritstjóra sérkennileg sú ákvörðun kjördæmisþings Samfylkingarinnar um síðustu helgi að munstra í fjórða sæti listans Guðnýju Hrund Karlsdóttur úr Reykjanesbæ. Opinber ástæða þess að kjördæmisþingið tekur svona fram fyrir hendurnar á þeim sem grunlausir gengu til prófkjörs er sú að sá frambjóðandi sem lenti í 4. sæti í prófkjörinu hefur horfið til annarra […]

Góð ráð fyrir siglingu

Sjóveiki

Hvað er sjóveiki?

Sjóveiki er misræmi milli skynfæra líkamans sem senda boð til heilans um hreyfingu – kyrrstöðu.

Þegar einstaklingur er úti á sjó þá nema skynjarar í vökvafylltum gangi í innra eyra hreyfingu og senda boð til heilans að einstaklingur sé á hreyfingu. Augun senda hins vegar boð til heilans um að viðkomandi sé kyrr. Heilinn á erfitt með að vinna úr þessum misvísandi og ósamræmdu upplýsingum og sendir skilaboð til magans um að tæma sig – þ.e. veldur uppköstum.

Einkenni sjóveiki eru þreyta, ógleði, svimi, svitakóf og uppköst.

Góð ráð til að hindra sjóveiki:

  • Góð hvíld daginn fyrir brottför. Að fara seint að sofa og snemma um borð í bát fer ekki vel saman ef fólk er hætt við sjóveiki.
  • Forðist áfenga drykki daginn fyrir brottför
  • Forðist djúpsteiktan, brasaðan eða saltan mat daginn fyrir siglingu.
  • Borðið góðan morgunverð. Borðið gjarnan hvítt brauð, hafragraut og ávexti þó ekki sítrus ávexti.
  • Forðist mikið koffein. Mikið kaffi er ekki það sem maganum líkar fyrir sjóferð.
  • Hafðu mat með þér á sjó. Gott er að hafa samlokur með kjúklingi eða kalkún. Kjötið er fitusnautt og brauðið er róandi í maga. Hafðu endilega eitthvað til að grípa í sem er létt í maga. Bananar eru mjög góðir til að narta í ef þú finnur fyrir ógleði en einnig er gott að hafa létt kex eða annað sem er ekki salt eða fitumikið.
  • Drekkið vel af vatni en einnig er gott er að drekka kóla drykki eða engiferöl í sjóferðinni

Lyf við sjóveiki þ.e. lyf sem slá á einkennin og fást án lyfseðils í apóteki.

  • Koffínátín – fæst án lyfseðils
  • Postafen – fæst án lyfseðils
  • Scopolamin plástur – lyfseðilsskyltEinnig má fá armbönd gegn ferðaveiki sem sumir telja að hjálpi.

Önnur ráð:

  • Engifer er jurt sem nýlega hefur fengið aukna athygli vegna þess að því er haldið fram að hún geti slegið á ógleði sem fylgir sjóveiki. Til forna tuggðu kínverskir sjómenn engiferrót til að draga úr sjóveiki. Flest lyf sem virka á ógleði verka á heilann en engifer virkar aðeins á magann. Ráðlagt er að taka 1000 mg. hylki hálftíma fyrir brottför. Einnig má taka eitt eða tvö 500 mg. hylki sem eru til viðbótar á ferðalaginu. Ekki er ráðlagt að drekka coke með engifertöflum.
  • Piparminta og te eru einnig gömul húsráð við ferðaveiki.
  • Sumum finnst betra að taka sýrujafnandi töflur, Alminox eða slíkt áður en þú heldur á sjó og þá er gott að hafa box með út á sjó.

Hvar í skipinu er best að vera o.fl.

  • Minna finnst fyrir hreyfingu og veltingi ef maður er staddur næst miðju bátsins.
  • Mörgum finnst gott að vera í kulda, t.d.að vera úti á dekki og láta vindinn leika um sig.
  • Matarlykt fer illa í þá sem hætt er við sjóveiki og einnig pústið frá bátnum.

Þungun:

Þungaðar konur sem þjást af sjóveiki mega nota koffinátín í litlum skömmtum en best er að ráðfæra sig við lækni eða lyfjafræðing.
Þunguðum konum er ekki ráðlagt að nota engifer þar sem það er ekki staðfest hvort það geti haft skaðleg áhrif á fóstur.

Eyjafréttir
Friðhelgisyfirlýsing

Þessi vefsíða notar fótspor til að við getum veitt þér bestu notendaupplifun. Upplýsingar um fótspor eru geymdar í vafranum þínum og framkvæma aðgerðir eins og að þekkja þig þegar þú kemur aftur á vefsíðu okkar og hjálpa teymi okkar að skilja hvaða hluta vefsíðunnar þér finnst áhugaverðast og gagnlegast.