Vilja nýjan Herjólf

Vinstri grænir á Suðurlandi vilja að fenginn verði nýr Herjólfur til að leysa núverandi skip af hólmi á leiðinni Vestmannaeyjar – Þorlákshöfn. Skipið skuli fullnægja flutningsþörfinni og fara 3 ferðir á sólarhring. Þá ítreka Vinstri græn að ákvörðun um gjaldskrá skipsins taki mið af því að leiðin sé þjóðvegur. Vinstri grænir segja að ákvörðun um nýtt skip þoli ekki bið og sé óháð því hvort ráðist verði í gangnagerð eðaÞá vilja Vinstri grænir jafnframt að stjórnvöld láti skilyrðislaust klára þær nauðsynlegu rannsóknir sem þurfi til að byggja á ákvarðanir um jarðgöng til Vestmannaeyja. Ekki dugi að byggja á gömlum upplýsingum og ónógum rannsóknum og hafna göngum á þeim forsendum, eins og gert sé í nýrri skýrslu.

Nýjustu fréttir

Kvennalið ÍBV gerði upp knattspyrnusumarið í gær
Hrekkjavökuföndur á bókasafninu – myndasyrpa
Nóg að gera í saltfisksölunni
Frumkvæði Eyjamanna í heiðri haft
KA fylgir ÍBV niður í Lengjudeildina þrátt fyrir stórsigur
Tekjur á íbúa næstlægstar en afkoma meðal þeirra bestu
Handknattleiksdeild ÍBV með saltfisksölu í dag
Bókasafnið komið í hrekkjavökubúning
Eyjafréttir
Friðhelgisyfirlýsing

Þessi vefsíða notar fótspor til að við getum veitt þér bestu notendaupplifun. Upplýsingar um fótspor eru geymdar í vafranum þínum og framkvæma aðgerðir eins og að þekkja þig þegar þú kemur aftur á vefsíðu okkar og hjálpa teymi okkar að skilja hvaða hluta vefsíðunnar þér finnst áhugaverðast og gagnlegast.