ÍBV Íslandsmeistari í 7 manna bolta

Stelpurnar í 3. flokki gerðu sér lítið fyrir og tryggðu sér Íslandsmeistaratitilinn í 7 manna bolta í dag. Eins og glöggir lesendur síðunnar hafa tekið eftir, fór úrslitakeppnin fram í Vestmannaeyjum um helgina við allra bestu aðstæður. Nokkuð rok var þó í gær en liðin náðu þrátt fyrir það að sýna glæsilega spilamennsku. Í dag var síðan alger blíða og keppnisvellirnir í mjög góðu standi eins og vallarstjórans var von og vísa.Stelpurnar léku frábæran fótbolta í dag og rúlluðu yfir báða andstæðinga sína. Fyrst sigruðu þær KS/Leiftur 7-0 og svo fengu KA stúlkur að finna til tevatnsins en þær lágu 5-0 fyrir frískum Eyjastelpum. Þær sigruðu því úrslitakeppnina, enduðu með 10 stig og 15 mörk í plús. Það var síðan fyrirliði liðsins, Saga Huld Helgadóttir sem tók við Íslandsbikarnum úr hendi Einars Friðþjófssonar stjórnarmanns í KSÍ.

Lið Sindra frá Hornafirði sýndi einnig mjög góð tilþrif í mótinu og hafa innanborðs margar efnilegar stelpur. Þær veitti ÍBV stelpunum góða keppni en komust ekki nær en í annað sæti mótsins.

ÍBV.is óskar þjálfaranum Jóni Ólafi Daníelssyni og öllum leikmönnum 3. flokks kvenna til hamingju með Íslandsmeistaratitilinn og glæsilegan árangur í sumar. Halla Einarsdóttir ljósmyndari smellti nokkrum myndum við verðlaunaafhendinguna í dag og þær fylgja hér með.

TIL HAMINGJU STELPUR !

Nýjustu fréttir

Yfir 90% íbúa ánægðir
Bríet kemur fram á Hljómey
Sæunn Magnúsdóttir gengur til liðs við Miðflokkinn
Framkvæmdir hafnar við Áshamar 77  
Dýptarmælingar fyrirhugaðar í Landeyjahöfn
Landsréttur hafnaði kröfu um gæsluvarðhald
Framkvæmdir í febrúar-blíðunni
„Þær halda utan um hjartað í Hljómey“ 
Eyjafréttir
Friðhelgisyfirlýsing

Þessi vefsíða notar fótspor til að við getum veitt þér bestu notendaupplifun. Upplýsingar um fótspor eru geymdar í vafranum þínum og framkvæma aðgerðir eins og að þekkja þig þegar þú kemur aftur á vefsíðu okkar og hjálpa teymi okkar að skilja hvaða hluta vefsíðunnar þér finnst áhugaverðast og gagnlegast.