300 tonn, takk fyrir !!

 Það bjóst enginn við að það væri þetta magn í pokanum því við vorum búnir að sjá svo illa á aflanemana og það rétt kornaði í gatinu á höfuðlínustykkinu. En það kom annað á daginn heil 300 tonn. Við dældum 200 tonnum í okkur og restin, eða 100 tonn fóru yfir í Hákon EA. Síldin er mjög góð og er meðalviktin um 378 gr. og er nánast átulaus. Það á þar af leiðandi að heilfrysta síldina og flaka það sem kemur undan flokkaranum.

  Við erum ekki á frægum síldarslóðum, við erum VSV af Jan Mayen og eru ekki nema 3 sml. í Grænlensku línuna. En það er sama hvar maður er á sjónum ef síldin gefur sig.

  Hákon EA tekur svo næsta hal og vonandi verður eitthvað framhald á þessu. Hinir Íslendingarnir eru farnir eitthvað annað eða eru ekki hér með okkur en hafa sennilega ekki farið langt. Færeyingarnir eru hérna rétt hjá okkur en ég hef engar fréttir af aflabrögðum hjá þeim.

  Þetta kemur sennilega til með að vera halið sem bjargar geðheilsu manna. Þetta er annað hvort í ökla eða eyra því við hífðum ekki nema 30 tonn síðast. Það er aðeins að lyftast brúnin á mönnum hér og er óhætt að segja að menn tóku þessu með brosi á vör og tilhlökkun í hjarta. Því nú stefnir í að maður nái bara heillri vakt í vinnslu. En þetta er ekkert minna en glæsilegt, best að fara og drífa sig í sloppinn og setja á sig hárnetið og skella sér fram í vinnslu.

Nýjustu fréttir

Róbert hjá ÍBV næstu tvö árin
Framkvæmdir langt komnar í Íþróttamiðstöðinni
Skákþing Vestmannaeyja: Úrslitin ráðast í síðustu umferðunum
Yfir 90% íbúa ánægðir
Bríet kemur fram á Hljómey
Sæunn Magnúsdóttir gengur til liðs við Miðflokkinn
Framkvæmdir hafnar við Áshamar 77  
Dýptarmælingar fyrirhugaðar í Landeyjahöfn
Eyjafréttir
Friðhelgisyfirlýsing

Þessi vefsíða notar fótspor til að við getum veitt þér bestu notendaupplifun. Upplýsingar um fótspor eru geymdar í vafranum þínum og framkvæma aðgerðir eins og að þekkja þig þegar þú kemur aftur á vefsíðu okkar og hjálpa teymi okkar að skilja hvaða hluta vefsíðunnar þér finnst áhugaverðast og gagnlegast.