Stefán Már Stefánsson úr GR sigraði á fimmta stigamóti ársins á Kaupþingsmótaröðinni í Vestmannaeyjum í dag en hann lék á 2 höggum yfir pari samtals, 68 og 74 höggum.Haraldur H. Heimisson úr GR varð annar á 4 höggum yfir pari samtals en hann er stigameistari mótaraðarinnar í ár. Sigurþór Jónsson úr GK varð þriðji á 6 höggum yfir pari og Birgir Guðjónsson úr GR varð fjórði á 7 höggum yfir pari. Það vekur athygli að aðeins 24 kylfingar luku keppni í karlaflokki á þessu stigamóti en 27 keppendur hófu leik.
Fagmannakvöld í Miðstöðinni – frá þorrablóti til…
Vikan í Eyjum: Herjólfur, framkvæmdir við höfnina og…
Bæjarstjórn gagnrýnir boðaðan niðurskurð til Herjólfs
Kveikjum neistann – Jákvæðar niðurstöður en…
Listi yfir umsækjendur um starf slökkviliðsstjóra…
Lúðrasveitin í landsliðsklassa – Kraftur, gleði og…