Reynslusaga ungs eyjamanns úr Reykjavík

Bróðir minn lenti í nokkuð skondnu atviki í rvk-inni í gær. Nýfluttur til rvk og veit kannski ekki alveg hvernig allt funkerar hérna en ég fullvissaði hann nú um að það sem hann lenti í, í gær væri nú ekki daglegt brauð.

Það var þannig að hann var að keyra í Kópavoginum á leiðinni með TV-ið í viðgerð fyrir stóru systur og var stopp á rauðu ljósi þegar sextugur kínverji hoppar inn í bílinn og bendir út í loftið og segir ” mjooodd mjoddd….eg missas strætó þú skutla” eftir nokkrar endurtekningar fattaði Óli að hann væri að biðja hann um að skutla sér í mjóddina.
Kínverjinn var voða spenntur yfir sjónvarpinu í aftursætinu og sagði “þú selja sjónvarp. ég kaupa. sjónvarp bilað?”
“já nei nei ég er nú bara að fara með það í viðgerð fyrir systur mína. “
Svo voru þeir nánast komnir að mjóddinni og stopp aftur á rauðu ljósi þegar kínverjinn hoppar aftur út og kveður með orðunum “ég fara hér. Takk fyrir skutl”

http://hjordisjo.blogspot.com/

 

Nýjustu fréttir

Stefnir í spennandi prófkjör hjá Sjálfstæðismönnum
Vonir vakna hjá TV á Íslandsmóti skákfélaga
Ekkert siglt í dag
Þóra Guðný og Svenni um bygginarframkvæmdina  
Gular viðvaranir víðast hvar
Ófært til lands – uppfært
Gyllta flóran keppir fyrir hönd Féló
Bíða enn eftir alvöru vertíðarstemmningu
Eyjafréttir
Friðhelgisyfirlýsing

Þessi vefsíða notar fótspor til að við getum veitt þér bestu notendaupplifun. Upplýsingar um fótspor eru geymdar í vafranum þínum og framkvæma aðgerðir eins og að þekkja þig þegar þú kemur aftur á vefsíðu okkar og hjálpa teymi okkar að skilja hvaða hluta vefsíðunnar þér finnst áhugaverðast og gagnlegast.