Hvar er stóri pakkinn Lúðvík ?

Lúðvík sagði að “þá muni verða kynntur sko, stór pakki til leiks þannig að það verða miklar áherslur lagðar á samgöngur við Vestmannaeyjar áfram sem hingað til. […] Við munum sjá vatnaskil í samgöngum til Vestmannaeyja…”

Ritstjóri gerir sér reyndar grein fyrir því að Lúðvík hefur aldrei viljað kenna sig við svokallaða karamellupólitík, en 15 aukaferðir með Herjólfi ná því varla að teljast karamella, hvað þá “stór pakki” eða “vatnaskil”.

Það skyldi þó aldrei vera að úrslit sveitarstjórnarkosninganna í Vestmannaeyjum í fyrra og útreiðin í prófkjöri Samfylkingarinnar hafi haft meiri áhrif á stöðu Lúðvíks innan Samfylkingarinnar en menn gerðu sér grein fyrir í fyrstu. Að minnsta kosti virðist hann hafa álíka mikil áhrif á stefnu ríkisstjórnarinnar og Árni Johnsen, starfsbróðir hans.

Og embætti þingflokksformanns er varla svipur hjá sjón frá því þegar prímus mótor Samfylkingarinnar, Össur Skarphéðinsson gegndi því. Það var a.m.k. eitthvað að marka það sem hann sagði. Á meðan bíðum við Eyjamenn enn eftir “vatnaskilum” í samgöngumálum.

Nýjustu fréttir

Ísólfur Gylfi – 42 ár frá Helliseyjarslysinu
Bæjarráð samþykkir að selja hlut í Landsbankanum
Lokaumferðin: ÍBV fær topplið Vals í heimsókn
„Meira af loðnu en maður hefur séð í langan tíma“
Eyjalistinn boðar til félagsfundar
Góð aðsókn á fundi Eyþórs
Karla- og kvennalið ÍBV töpuðu í Lengjubikarnum
Heimaey í dag
Eyjafréttir
Friðhelgisyfirlýsing

Þessi vefsíða notar fótspor til að við getum veitt þér bestu notendaupplifun. Upplýsingar um fótspor eru geymdar í vafranum þínum og framkvæma aðgerðir eins og að þekkja þig þegar þú kemur aftur á vefsíðu okkar og hjálpa teymi okkar að skilja hvaða hluta vefsíðunnar þér finnst áhugaverðast og gagnlegast.