Gunnar Heiðar skoraði í 2:0-sigri Vålerenga

Gunnar Heiðar Þorvaldsson skoraði fyrir norska liðið Vålerenga í 2:0-sigri liðsins gegn Fredrikstad í lokaleik 21. umferðar úrvalsdeildarinnar í Noregi. Gunnar skoraði á 10. mínútu með skoti af stuttu færi en fyrra markið skoraði Dan Thomassen eftir aðeins 48 sekúndur.Þetta er fyrsta markið sem Gunnar skorar fyrir Vålerenga frá því hann var lánaður til félagsins frá Hannover í Þýskalandi. Árni Gautur Arason var í marki Vålerenga en Garðar Jóhannsson kom ekki við sögu í liði Fredrikstad í leiknum Vålerenga er í 7. sæti deildarinnar með 30 stig, 15 stigum á eftir Brann, sem er í efsta sæti. Fredrikstad er í 8. sæti með 29 stig.

Nýjustu fréttir

Gönguleið austur á nýja hrauni
Ákvörðun um höfn tekin klukkan sex í fyrramálið
Sjaldheyrðar Eyjaperlur fengu að hljóma í Eldheimum
Þjóðhátíðarlögin ómuðu á landsmóti lúðrasveita
Erna Georgsdóttir formaður goslokanefndar 2027
Mikilvæg stig í húfi á Hásteinsvelli
Jóker-vinningur á miða úr Eyjum
ÍBV B áfram í 16-liða úrslit Powerade bikarsins eftir sigur á Herði
Eyjafréttir
Friðhelgisyfirlýsing

Þessi vefsíða notar fótspor til að við getum veitt þér bestu notendaupplifun. Upplýsingar um fótspor eru geymdar í vafranum þínum og framkvæma aðgerðir eins og að þekkja þig þegar þú kemur aftur á vefsíðu okkar og hjálpa teymi okkar að skilja hvaða hluta vefsíðunnar þér finnst áhugaverðast og gagnlegast.