Vefurinn www.mbl.is birtir í gær frétt um aukafund bæjarráðs Vestmannaeyja um málefni Bakkafjöru og Bakkaferju. Á mbl.is geta bloggarar skrifar sínar skoðanir á fréttum og létu viðbrögð bloggara mbl.is ekki á sér standa í gær og sitt sýndist hverjum um málefnið.
Sigursveinn Þórðarson
http://www.svenko.blog.is
Ánægður að sjá þessa frétt. Aukafundur í bæjarráði og lagt fram minnisblað um óskir Vestmannaeyjabæjar gagnvart Bakkafjöruhöfn. Þetta er það sem við þurfum, fara að berjast fyrir tíðni ferða og stærð skipsins. Eins er ég sammála að ekkert vit er í að semja til fimmtán ára.
Athyglisvert að sjá að minnisblaðið sé unnið í samráði við sérfróða aðila, svo sem skipstjórnendur á Herjólfi, reynda skipstjóra og sjómenn í Eyjum, stjórnendur Vestmannaeyjahafnar og fleiri.
Það eru þá ekki allir sjómenn í Eyjum á móti þessari framkvæmd?
Haukur Nikulásson
http://haukurn.blog.is/
Landsmenn allir borgi sportdvöl á eldfjallaeyju
Ég viðurkenni að ég læt pirrast yfir því að fólk, sem býr á sérkennilegum, fámennum og erfiðum stöðum úti á landi, geri endalausar kröfur um að fá sama lifistandard og þeir sem búa í hagkvæmara þéttbýli.
Það er eins og þetta fólk hafi engan skilning á því að þau eru að gera kröfur um að aðrir borgi fyrir þá sérvisku sem felst í því að búa á stöðum sem eru óaðgengilegir vegna samgangna eins og Vestmannaeyjar og Grímsey.
Predikarinn
http://predikarinn.blog.is/blog
NÁLÆGT ÞVÍ ALLIR ÍBÚAR VESTMANNAEYJA KOMAST ÞÁ Á MILLI LANDS OG EYJA Á HVERJUM SÓLARHRING ! SKYLDI ÞETTA KOSTA EINHVERJA SMÁAURA ?
Kröfurnar eru þá þær að u.þ.b. allir íbúar Vestmannaeyja komist á milli lands og eyja á hverjum degi , 10 ferðir á dag með 350 farþega gera þá 3.500, farþega hvora leið hvern dag. Hvað kostar þetta almenna skattgreiðendur ?
Er ekki nær að gefa þeim Vestmannaeyjarbúum einbýlishús hvar sem er á landinu, á okkar kostnað, ef þeir lofa að koma sér sjálfir út í sumarbústaðinn sinn í eyjum sem þeir skilja þá eftir þar ?
Þórir Björnsson
http://hrokinn.blog.is
Er þetta nú bara eitthvað rugl ?
Á bara ekki helvítis ferjan að ganga fram og til bara stanzlaust ? Þetta hlýtur að vera sett fram með þeirri ástæðu að þau geri ráð fyrir að þau fái helminginn af þessu eða hvað ???




















Skráðu þig á fáðu nýjustu tilkynningar fyrst
Ekki liggja fyrir nýjar mælingar
Hvað er sjóveiki?
Sjóveiki er misræmi milli skynfæra líkamans sem senda boð til heilans um hreyfingu – kyrrstöðu.
Þegar einstaklingur er úti á sjó þá nema skynjarar í vökvafylltum gangi í innra eyra hreyfingu og senda boð til heilans að einstaklingur sé á hreyfingu. Augun senda hins vegar boð til heilans um að viðkomandi sé kyrr. Heilinn á erfitt með að vinna úr þessum misvísandi og ósamræmdu upplýsingum og sendir skilaboð til magans um að tæma sig – þ.e. veldur uppköstum.
Einkenni sjóveiki eru þreyta, ógleði, svimi, svitakóf og uppköst.
Góð ráð til að hindra sjóveiki:
Lyf við sjóveiki þ.e. lyf sem slá á einkennin og fást án lyfseðils í apóteki.
Önnur ráð:
Hvar í skipinu er best að vera o.fl.
Þungun:
Þungaðar konur sem þjást af sjóveiki mega nota koffinátín í litlum skömmtum en best er að ráðfæra sig við lækni eða lyfjafræðing.
Þunguðum konum er ekki ráðlagt að nota engifer þar sem það er ekki staðfest hvort það geti haft skaðleg áhrif á fóstur.