Hetjurnar okkar

 Helgin hefur verið hreint stórkostleg.  Við Unnur vorum með Peyjana okkar í 6. flokki á íslandsmóti og árangurinn var slíkur að við erum að hreint springa úr monti af litlu hetjunum okkar.  Reyndar er ég svo mikil keppnismaður í mér að ég þarf öðru hverju (reyndar í hverjum leik) að minna sjálfan mig á að þetta snýst um það að hafa gaman og sigur er einungis bónus. (myndin hér til hliðar er af drengjunum okkar rétt áður en þeir gengu inn með landsliðinu fyrir leik Íslands og Ungverjalands á föstudaginn, ekki kæmi það mér á óvart þótt einhverjir þeirra ættu síðar eftir að verða leikmenn með landsliðinu).

6. flokkur karla tók þátt í fyrsta fjölliðamóti vetrarins um helgina. Keppnin var í umsjón FH og fór fram í Hafnafirði, og stóðu þeir sig afar vel í framkvæmd eins og þeirra var von og vís. Mótið var fjölmennt en við í ÍBV mættum til leiks með 4 lið, A (fæddir 96), B (fæddir 96), C (fæddir 97) og C2 (fæddir 97). Alls voru því 32 Eyjapeyjar þátttakendur í mótinu. Riðlakeppni hófs snemma morguns á laugardag og drengirnir okkar sýndu strax að það er ekki tilviljun að Vestmannaeyjar eru kallaðar íþróttabær. Ekki einungis voru þeir sjálfum sér til sóma innan vallar og utan, heldur var árangur liðanna umfram það sem hægt er að ætlast til. A og C lið luku sínum leikjum fyrir hádegi og tryggðu sér snemma sannfærandi sæti í milliriðlum. C liðið lauk til að mynda milliriðlum með markatöluna 96 – 13. B og C2 hófu svo keppni eftir hádegi. B liðinu tóks ætlunarverk sitt og tryggði sér sæti í milliriðlum og C2 var einungis einu marki frá því markmiði.

Á sunnudagsmorgun hófust síðan milliriðlar og drengirnir okkar mættu einbeittir til leiks.  Til að gera langa sögu stutta þá endaði A liði í 2. sæti, B liði í 2. sæti og C liðið lauk leik án þess að tapa einum einasta leik og eru ótvíræðir sigurvegar mótsins.

Það eru mikil forréttindi að fá að taka þátt í því mikla starfi sem unnið er innan ÍBV.  Hlutdeildin í lífi barnanna sem eru stöðugt að upplifa sigra innan vallar og utan fyllir mann trú á tilveruna á öflugri hátt en flest og engin vettvangur er betri en slíkt en starf innan ÍBV.  Skipulagið og gæði starfsins eru hreint frábær.  Að sjá stjörnurnar í augum 50 barna í ÍBV þegar þau gengu inn á þjóðarleikvangin okkar með landsliðsmönnum fyrir leik á föstudaginn er einungis sýnishorn af þeirri upplifun sem störf innan íþróttahreyfingarinnar býður upp á.

Ég er nú þegar farinn að hlakka til æfingarinnar sem er kl. 17.00 á mánudag og ljóst að bæði við Unnur og Peyjarnir erum nú margs vísari um hvað við þurfum að gera til að ná betri árangri því stefnan er áfram tekin á að vera ÍBV til sóma bæði hvað varðar hegðun, umgengni, leikgleði, árangur og allt annað.

Elliði Vignisson bloggar á http://ellidiv.blog.is

 

 

Nýjustu fréttir

Vestmannaeyjar í fókus hjá bresku sjávarútvegsblaði
Eyjamaðurinn: Elís Þór
Miðflokkurinn býður fram í Eyjum
Kyrrðarbæn í dag
Tveir handteknir í tengslum við andlát
Vera Lífsgæðasetur og LifeLine Health hefja samstarf
Andrea Jacobsen til liðs við ÍBV
Tafir vegna bilunar

Góð ráð fyrir siglingu

Sjóveiki

Hvað er sjóveiki?

Sjóveiki er misræmi milli skynfæra líkamans sem senda boð til heilans um hreyfingu – kyrrstöðu.

Þegar einstaklingur er úti á sjó þá nema skynjarar í vökvafylltum gangi í innra eyra hreyfingu og senda boð til heilans að einstaklingur sé á hreyfingu. Augun senda hins vegar boð til heilans um að viðkomandi sé kyrr. Heilinn á erfitt með að vinna úr þessum misvísandi og ósamræmdu upplýsingum og sendir skilaboð til magans um að tæma sig – þ.e. veldur uppköstum.

Einkenni sjóveiki eru þreyta, ógleði, svimi, svitakóf og uppköst.

Góð ráð til að hindra sjóveiki:

  • Góð hvíld daginn fyrir brottför. Að fara seint að sofa og snemma um borð í bát fer ekki vel saman ef fólk er hætt við sjóveiki.
  • Forðist áfenga drykki daginn fyrir brottför
  • Forðist djúpsteiktan, brasaðan eða saltan mat daginn fyrir siglingu.
  • Borðið góðan morgunverð. Borðið gjarnan hvítt brauð, hafragraut og ávexti þó ekki sítrus ávexti.
  • Forðist mikið koffein. Mikið kaffi er ekki það sem maganum líkar fyrir sjóferð.
  • Hafðu mat með þér á sjó. Gott er að hafa samlokur með kjúklingi eða kalkún. Kjötið er fitusnautt og brauðið er róandi í maga. Hafðu endilega eitthvað til að grípa í sem er létt í maga. Bananar eru mjög góðir til að narta í ef þú finnur fyrir ógleði en einnig er gott að hafa létt kex eða annað sem er ekki salt eða fitumikið.
  • Drekkið vel af vatni en einnig er gott er að drekka kóla drykki eða engiferöl í sjóferðinni

Lyf við sjóveiki þ.e. lyf sem slá á einkennin og fást án lyfseðils í apóteki.

  • Koffínátín – fæst án lyfseðils
  • Postafen – fæst án lyfseðils
  • Scopolamin plástur – lyfseðilsskyltEinnig má fá armbönd gegn ferðaveiki sem sumir telja að hjálpi.

Önnur ráð:

  • Engifer er jurt sem nýlega hefur fengið aukna athygli vegna þess að því er haldið fram að hún geti slegið á ógleði sem fylgir sjóveiki. Til forna tuggðu kínverskir sjómenn engiferrót til að draga úr sjóveiki. Flest lyf sem virka á ógleði verka á heilann en engifer virkar aðeins á magann. Ráðlagt er að taka 1000 mg. hylki hálftíma fyrir brottför. Einnig má taka eitt eða tvö 500 mg. hylki sem eru til viðbótar á ferðalaginu. Ekki er ráðlagt að drekka coke með engifertöflum.
  • Piparminta og te eru einnig gömul húsráð við ferðaveiki.
  • Sumum finnst betra að taka sýrujafnandi töflur, Alminox eða slíkt áður en þú heldur á sjó og þá er gott að hafa box með út á sjó.

Hvar í skipinu er best að vera o.fl.

  • Minna finnst fyrir hreyfingu og veltingi ef maður er staddur næst miðju bátsins.
  • Mörgum finnst gott að vera í kulda, t.d.að vera úti á dekki og láta vindinn leika um sig.
  • Matarlykt fer illa í þá sem hætt er við sjóveiki og einnig pústið frá bátnum.

Þungun:

Þungaðar konur sem þjást af sjóveiki mega nota koffinátín í litlum skömmtum en best er að ráðfæra sig við lækni eða lyfjafræðing.
Þunguðum konum er ekki ráðlagt að nota engifer þar sem það er ekki staðfest hvort það geti haft skaðleg áhrif á fóstur.

Eyjafréttir
Friðhelgisyfirlýsing

Þessi vefsíða notar fótspor til að við getum veitt þér bestu notendaupplifun. Upplýsingar um fótspor eru geymdar í vafranum þínum og framkvæma aðgerðir eins og að þekkja þig þegar þú kemur aftur á vefsíðu okkar og hjálpa teymi okkar að skilja hvaða hluta vefsíðunnar þér finnst áhugaverðast og gagnlegast.