Vestmannaeyjar: Rúgbrauð og rjómi í rigningunni

– En ég á rjóma,- sagði heiðurskonan Guðbjörg Sigurgeirsdóttir sem er allt í senn blaðakona, framsóknarkona og Tungnakona þannig að betri getur blandan ekki orðið.

Samtalið átti sér stað inni á ritstjórn Frétta þar sem 8. þingmaður Suðurkjördæmis stóð blautur, hrakinn og hamingjusamur eftir volk í alltof stuttum og hægfara Herjólfi. Erindið er stjórnmálafundur í Eyjum í kvöld og upphaflega ætlaði ég að fljúga frá Bakka en varð að snarhætta við það vegna veðurs og snarast í hasti af miðjum fjárlaganefndarfundi í morgun til að ná ferjunni frá Þorlákshöfn á hádegi.

Svart kaffi gerir vissulega sitt gagn en samt skárra að fá í það mjólk en slíkan munað var ekki að finna á ritstjórn vina minna á Fréttum. Svo lifnaði yfir Guðbjörgu þegar hún mundi eftir rjómalögginni sem er auðvitað margfalt betri kostur og bætti samt um betur:

– Svo á ég rúgbrauð,- restin af nestinu mínu. Þá er þetta orðið alveg eins og í gamla daga. Þú hlýtur að vera svangur eftir siglinguna.

Sem ég var þó ég fyndi það ekki almennilega fyrr en ég byrjaði á kaffinu. Líkaminn allur var hálfvegis þaninn og vitlaus eftir einhverja þá svakalegustu siglingu sem ég hefi lent í. Veðurofsinn slíkur að öðru hvoru var eins og barið væri með sleggju í kinnunginn utan við kojuna og svefninn hálfvegis slitróttur.

Mest blöskraði mér samt verðið. 4000 krónur fyrir að koma einum bíllausum kalli yfir sundið. Dýr tollur fyrir þá sem búa hér….

Bjarni Harðarson bloggar á www.http://bjarnihardar.blog.is

Nýjustu fréttir

Bríet kemur fram á Hljómey
Sæunn Magnúsdóttir gengur til liðs við Miðflokkinn
Framkvæmdir hafnar við Áshamar 77  
Dýptarmælingar fyrirhugaðar í Landeyjahöfn
Landsréttur hafnaði kröfu um gæsluvarðhald
Framkvæmdir í febrúar-blíðunni
„Þær halda utan um hjartað í Hljómey“ 
Skólamál og ábyrgð í opinberri umræðu
Eyjafréttir
Friðhelgisyfirlýsing

Þessi vefsíða notar fótspor til að við getum veitt þér bestu notendaupplifun. Upplýsingar um fótspor eru geymdar í vafranum þínum og framkvæma aðgerðir eins og að þekkja þig þegar þú kemur aftur á vefsíðu okkar og hjálpa teymi okkar að skilja hvaða hluta vefsíðunnar þér finnst áhugaverðast og gagnlegast.