Könnun lokið!

Eins og bæjarstjórinn svaraði spurningu minni um: Hver er samningsstaða bæjarstjórnar Vestmannaeyja í dag.? Svar” Það er sennilega ekki rétt að tala um samningstöðu í þessu máli því hún er í raun engin.”  Svo er nú það.  Nú er spurningin hvað við Eyjamenn viljum gera næstu fjögur – fimm árin?  á meðan beðið er eftir fjörunni.

Allir flokkar vildu stærra og hraðskreiðara skip nú þegar fyrir kosningar 2006- og 2007, en ekkert bólar á stærra skipi ennþá. Það er því spurning hvort flöskuhálsinn umræddi þrengist bara, eða fer bæjarstjórn nú í  það á fullum krafti að láta í sér heyra og minna núverandi stjórnarflokka á gömul loforð.

Fréttir vikubl.fimmtud. 28.júní. 2007. Aukaferðir sem ríkisstjórn hafði samþykkt eru í hnút. Bæjarstjóri vill tafarlaust fá nýja ferju. “Það sem til þarf er að tafarlaust verði fengin nýrri og öflugri ferja sem leyst geti þessa af þar til við sjáum framtíðarsamgöngur komast á ” 

Það er nú það sem Frjálslyndir hafa alla tíð talað fyrir. En samgöngumál okkar eiga ekki að snúast um flokkadrætti, en því miður hafa sumir viljað draga fólk í flokka vegna umræðu um Bakkafjöru og er það miður að mínu mati. Allir Eyjamenn eiga að fá að tjá sig um svo stórt hagsmunamál Eyjanna, án þess að verða stimplaðir” dómsdagsspámenn, svartsýnisfólk, frjálslynt fólk sem berst hatramlega gegn Bakkafjöru. Eins og áður segir er mörgum spurningum ósvarað vegna Bakkfjöru og ég tel enn að öll umræða sé að hinu góða, sama hvaða flokk fólk styður.  Svo einfalt er það.

Hanna Birna bloggar á http://hbj.blog.is

Nýjustu fréttir

Safna fyrir innileikvelli fyrir börn 
85 ára saga Rauða krossins í Eyjum – opið hús í Arnardrangi á sunnudag
Skýr skilaboð frá flokksmönnum 
Framtíðarsýn og grunngildi – Hvert erum við að fara?
Landeyjahöfn – Þurfum öflugt dæluskip
Viljum frekar byggja upp en að rífa niður 
Dæluskipið Álfsnes á Bíldudal
Ótrúlegt að 1.200 manns taki þátt í prófkjöri í svona litlu samfélagi 
Eyjafréttir
Friðhelgisyfirlýsing

Þessi vefsíða notar fótspor til að við getum veitt þér bestu notendaupplifun. Upplýsingar um fótspor eru geymdar í vafranum þínum og framkvæma aðgerðir eins og að þekkja þig þegar þú kemur aftur á vefsíðu okkar og hjálpa teymi okkar að skilja hvaða hluta vefsíðunnar þér finnst áhugaverðast og gagnlegast.