ÍBV - Haukar á laugardaginn klukkan 15.00

Nú á laugardaginn 17.nóv klukkan 15.00 er leikur ÍBV – Hauka í Vestmannaeyjum.

Gengi liðana er mjög missjafnt, Haukar eru í öðru sæti með 12. stig hafa unnið 5 gert 2 jafntefli og tapað 1. Síðasti leikur hjá þeim fór 22-22 á móti Val eftir að hafa leitt í hálfleik 14-11. Markmenn Hauka hafa verið að verja ágætlega fram af þessu eru með 13,87 varða bolta í leik. Haukarnir er með mjög jafnt lið og eru 10 leikmenn komnir með fleiri en 10 mörk í deildinni.   

Markhæstir í liði Hauka eru þeir Freyr Brynjarsson með 35,  Andri Stefan með 33 mörk, Sigurbergur Sveinsson með 26, Arnar Jón Agnarsson með 26.

ÍBV hafa byrjað tímabilið mjög illa haf tapað 8 fyrstu leikjum sínum og erum í neðsta sæti með markatöluna -77. Síðasti leikur ÍBV var á móti Fram úti síðustu helgi og endaði hann 38-26. Markmenn ÍBV hafa varið að verja  mjög vel fram af þessu eru með 16,25 varða bolta sem er með því hærra í deildinni. ÍBV er að spila á fáu mönnum og aðeins 6 leikmenn komnir með fleiri en 10 mörk.                                                                                                       

Markahæstir í liði ÍBV eru þeir Sindri Haraldsson með 37, Sigurður Bragason með 33, Zilvinas Grieze með 30, Leifur og Nikki með 23 og Grétar Þór með 14 aðrir með minna.

ÍBV þarf að fara hala inn stig svo þeir missi ekki Aftureldingu og Akueyri of langt fram úr sér sem eru í 6. og 7. sæti.

Hvetjum við alla Eyjamenn að fara á leikinn og sjá lið ÍBV berja á Eyjamönnunum Gunnari berg, Kára kristján og Arnar péturs í liði Hauka.   

Nýjustu fréttir

ÍBV tapaði á Akureyri
Í dag eru 84 íbúðir í byggingu
ÍBV sækir KA heim í dag
Eyjamenn í eldlínunni
Konudagurinn er í dag
Jafnt hjá ÍBV og Fram í Lengjubikar kvenna
Tómas Bent og félagar í Hearts aftur á sigurbraut
ÍBV vann Suðurlandsslaginn
Eyjafréttir
Friðhelgisyfirlýsing

Þessi vefsíða notar fótspor til að við getum veitt þér bestu notendaupplifun. Upplýsingar um fótspor eru geymdar í vafranum þínum og framkvæma aðgerðir eins og að þekkja þig þegar þú kemur aftur á vefsíðu okkar og hjálpa teymi okkar að skilja hvaða hluta vefsíðunnar þér finnst áhugaverðast og gagnlegast.