Ágóðinn til fjölskyldu Svandísar �?ulu

Svandís �?ula var fimm ára gömul og í slysinu slasaðist bróðir hennar, Nóni Sær átta ára, alvarlega og bíður hans löng endurhæfing.Svandís �?ula bjó í næsta húsi við Tinganelli og lék oft við dætur hans tvær.Geisladiskurinn er væntanlegur í verslanir en ágóði af sölu hans rennur til fjölskyldu Svandísar �?ulu og Nóna Sæs. Hægt er […]

Fjárhagurinn tekinn föstum tökum

Jafnframt segir hann mögulegt að spara milljónir eða milljónatugi í vexti og verðbætur af lánum. Í næsta tölublaði Sunnlenska verður viðtal við Ingólf þar sem hann fræðir lesendur um galdurinn að baki bættum fjárhag. (meira…)

Tæpitungulaus byggðastefna

Nærri 20 manns sáu ástæðu til að heyra sjónarmið Bjarna og voru reyndar alltof fáir miðað við það að maðurinn er bráðskemmtilegur og skoðanir hans þar að auki mjög tæpitungulausar og í anda byggðastefnu, því málefni sem brennur m.a. á Eyjafólki. Taldi hann Framsóknarflokkinn eina flokkinn sem treystandi væri til að hafa málefni hinna dreifðu […]

Borgarlífið á vel við mig þó ég sé alltaf sveitastelpa

Skrýtin tilfinning að þvælast á milli staðaSif kom heim til Eyja í jólafrí og gaf sér tíma í smá spjall um dvölina úti en það var sannarlega stórt stökk að flytja frá Eyjum til að hasla sér völl í London og öðrum tískuborgum heimsins. �?�?að er gott að koma heim í frí en það má […]

Fimmtíu Eyjamenn skáluðu fyrir nýju ári á Kanarí

Guðrún Kristmannsdóttir er með eiginmanni sínum, Halldóri Hallgrímssyni og þremur dætrum sínum úti en þau höfðu verið þar yfir jól og áramót. Guðrún sagði í samtali við Fréttir að hópurinn væri að sleikja síðustu sólargeislana áður en haldið yrði heim á leið. �?�?etta er búið að vera mjög skemmtilegt hérna og við höfum haft það […]

Stal veski að loknu réttarhaldi

Fram kemur á Vísi.is að maðurinn hafi ekki fyrr verið laus en hann gekk yfir götuna og stal veski í verslun og tók að eyða úr því ótæpilega þartil hann var handtekinn á ný og yfirheyrður. Að því loknu hætti Selfosslögreglan ekki á neitt, heldur skilaði manninum aftur til Reykjavíkur og er hann nú sterklega […]

Góð ráð fyrir siglingu

Sjóveiki

Hvað er sjóveiki?

Sjóveiki er misræmi milli skynfæra líkamans sem senda boð til heilans um hreyfingu – kyrrstöðu.

Þegar einstaklingur er úti á sjó þá nema skynjarar í vökvafylltum gangi í innra eyra hreyfingu og senda boð til heilans að einstaklingur sé á hreyfingu. Augun senda hins vegar boð til heilans um að viðkomandi sé kyrr. Heilinn á erfitt með að vinna úr þessum misvísandi og ósamræmdu upplýsingum og sendir skilaboð til magans um að tæma sig – þ.e. veldur uppköstum.

Einkenni sjóveiki eru þreyta, ógleði, svimi, svitakóf og uppköst.

Góð ráð til að hindra sjóveiki:

  • Góð hvíld daginn fyrir brottför. Að fara seint að sofa og snemma um borð í bát fer ekki vel saman ef fólk er hætt við sjóveiki.
  • Forðist áfenga drykki daginn fyrir brottför
  • Forðist djúpsteiktan, brasaðan eða saltan mat daginn fyrir siglingu.
  • Borðið góðan morgunverð. Borðið gjarnan hvítt brauð, hafragraut og ávexti þó ekki sítrus ávexti.
  • Forðist mikið koffein. Mikið kaffi er ekki það sem maganum líkar fyrir sjóferð.
  • Hafðu mat með þér á sjó. Gott er að hafa samlokur með kjúklingi eða kalkún. Kjötið er fitusnautt og brauðið er róandi í maga. Hafðu endilega eitthvað til að grípa í sem er létt í maga. Bananar eru mjög góðir til að narta í ef þú finnur fyrir ógleði en einnig er gott að hafa létt kex eða annað sem er ekki salt eða fitumikið.
  • Drekkið vel af vatni en einnig er gott er að drekka kóla drykki eða engiferöl í sjóferðinni

Lyf við sjóveiki þ.e. lyf sem slá á einkennin og fást án lyfseðils í apóteki.

  • Koffínátín – fæst án lyfseðils
  • Postafen – fæst án lyfseðils
  • Scopolamin plástur – lyfseðilsskyltEinnig má fá armbönd gegn ferðaveiki sem sumir telja að hjálpi.

Önnur ráð:

  • Engifer er jurt sem nýlega hefur fengið aukna athygli vegna þess að því er haldið fram að hún geti slegið á ógleði sem fylgir sjóveiki. Til forna tuggðu kínverskir sjómenn engiferrót til að draga úr sjóveiki. Flest lyf sem virka á ógleði verka á heilann en engifer virkar aðeins á magann. Ráðlagt er að taka 1000 mg. hylki hálftíma fyrir brottför. Einnig má taka eitt eða tvö 500 mg. hylki sem eru til viðbótar á ferðalaginu. Ekki er ráðlagt að drekka coke með engifertöflum.
  • Piparminta og te eru einnig gömul húsráð við ferðaveiki.
  • Sumum finnst betra að taka sýrujafnandi töflur, Alminox eða slíkt áður en þú heldur á sjó og þá er gott að hafa box með út á sjó.

Hvar í skipinu er best að vera o.fl.

  • Minna finnst fyrir hreyfingu og veltingi ef maður er staddur næst miðju bátsins.
  • Mörgum finnst gott að vera í kulda, t.d.að vera úti á dekki og láta vindinn leika um sig.
  • Matarlykt fer illa í þá sem hætt er við sjóveiki og einnig pústið frá bátnum.

Þungun:

Þungaðar konur sem þjást af sjóveiki mega nota koffinátín í litlum skömmtum en best er að ráðfæra sig við lækni eða lyfjafræðing.
Þunguðum konum er ekki ráðlagt að nota engifer þar sem það er ekki staðfest hvort það geti haft skaðleg áhrif á fóstur.

Eyjafréttir
Friðhelgisyfirlýsing

Þessi vefsíða notar fótspor til að við getum veitt þér bestu notendaupplifun. Upplýsingar um fótspor eru geymdar í vafranum þínum og framkvæma aðgerðir eins og að þekkja þig þegar þú kemur aftur á vefsíðu okkar og hjálpa teymi okkar að skilja hvaða hluta vefsíðunnar þér finnst áhugaverðast og gagnlegast.