Pedro Hipolito, þjálfari meistaraflokks karla ÍBV

Pedro Hipolito hefur verið ráðinn þjálfari meistaraflokks karla í knattspyrnu hjá ÍBV.

Pedro hefur verið við þjálfun á Íslandi frá því um mitt sumar 2017 er hann tók við þjálfun Fram. Þar á undan stýrði hann liði Atletivo CB í B-deildinni í heimalandi sínu, Portúgal við góðan orðstýr.

Hipolito tekur heldur betur við góðu búi frá Kristjáni Guðmundssyni sem skapað hefur ágætis stöðugleika hjá liðinu. Gaf ungum og efnilegum Eyjamönnum tækifæri þar sem þeir sýndu að þeir eiga fullt erindi í efstu deild á Íslandi. ÍBV endaði í sjötta sæti deildarinnar, sem er besti árangur liðsins síðan 2013.