Landeyjahöfn og mjaldrarnir

Til stendur að flytja mjaldrarna Little Grey og Little White með flugvél Cargolux til Íslands þann 16. apríl nk. Í framhaldinu stóð til að aka þeim með trukkum í Landeyjahöfn þar sem flytja átti þá með nýjum Herjólfi yfir í sín nýju heimkynni í Eyjum. 

Nú er ljóst að ný ferja verður ekki komin í áætlun í tæka tíð fyrir þann flutning, þrátt fyrir að vera tilbúin í Póllandi. En það sem verra er þá lítur út fyrir að tæpt verði hvort Landeyjahöfn verði fær fyrir flutninginn. En sem kunnugt er þá er dýpið lítið í hafnarminninu.

Allt er að verða klárt í Eyjum fyrir komu mjaldrana. Nú er hvíslað um það í Eyjum hvort að til standi að flytja mjaldrana í gegnum Þorlákshöfn eða hvort til standi að fresta fluginu frá Sjanghæ, ef að ekki verði búið að opna höfnina í Landeyjum.

Merkilegt er í þessu öllu er að óvissan er ekki um að flytja mjaldrana á milli heimsálfa, heldur er það síðasti leggurinn, leggurinn milli lands og eyja sem er óvissu háður. Þetta er ekki bara veruleiki mjaldra frá Kína, heldur er þetta veruleiki sem Eyjamenn búa við dag frá degi.

 

Nýjustu fréttir

Loðnuvertíðin hafin í Eyjum
Heiðurshjónin Hjalti og Vera Björk Eyjafólk ársins 2025
Elmar áfram hjá Nordhorn-Lingen
Róbert hjá ÍBV næstu tvö árin
Framkvæmdir langt komnar í Íþróttamiðstöðinni
Skákþing Vestmannaeyja: Úrslitin ráðast í síðustu umferðunum
Yfir 90% íbúa ánægðir
Bríet kemur fram á Hljómey
Eyjafréttir
Friðhelgisyfirlýsing

Þessi vefsíða notar fótspor til að við getum veitt þér bestu notendaupplifun. Upplýsingar um fótspor eru geymdar í vafranum þínum og framkvæma aðgerðir eins og að þekkja þig þegar þú kemur aftur á vefsíðu okkar og hjálpa teymi okkar að skilja hvaða hluta vefsíðunnar þér finnst áhugaverðast og gagnlegast.