Síðasti dagur til að senda inn tillögu að Goslokalagi ársins er næstkomandi miðvikudag 1. maí. Líkt og síðustu ár eru það BEST, Bandalag vestmanneyskra söngva- og tónskálda í samstarfi við Goslokanefnd sem halda utan um val á lagi.

Framlag skal sendast á [email protected] sem hljóðskjal (mp3, wav, wma, aac eða sambærilegt) ásamt texta og hljómsetningu þess. Útskrifuð laglína á nótum er vel þegin.

Þeir sem þurfa aðstoð við koma lagi sínu á hljóðform eða hafa aðrar fyrirspurnir er bent á að beina fyrirspurnum á netfangið [email protected] eða í síma 849-5754.

Fimm manna valnefnd tilnefnd af BEST og Goslokanefnd mun svo velja Goslokalagið 2019 úr innsendum framlögum.
Sigurlagið verður útsett og hljóðritað í samkomulagi við höfunda og frumflutt um miðjan júnímánuð á ljósvakamiðlum og interneti.