Ég dag, fimmtudag heldur áfram tjöldunarferli hvítu tjaldanna í Herjólfsdal. Þeir sem hafa tryggt sér tjaldstæði  ættu að hafa komið súlunum upp í gær. Í dag er svo komið að innanstokksmunum og dúknum.

Búslóðaflutningar inn á hátíðarsvæðið í Herjólfsdal verða leyfðir í dag milli kl. 11.30 og 15 og svo aftur milli kl. 17.30 og 20.00. Á öðrum tímum er Dalurinn lokaður fyrir umferð, þar með talið milli kl. 15 og 17.30.

Búslóðaflutningar verða svo aftur leyfðir milli kl. 9.00 og 11. 30 á morgun föstudag.