ÍBV tekur á móti Aftureldingu á Hásteinsvelli kl. 18.15 í dag. ÍBV sigraði fyrri viðureign liðanna í sumar með tveimur mörkum gegn einu. Liðin hafa fimm sinnum mæst og hefur ÍBV alltaf haft betur.

Leikið verður án áhorfenda en leikurinn verður sýndur í beinni útsendingu á Stöð 2 Sport.