ÍBV mætir Fram í dag klukkan 17:15 í átta liða úrslitum Coca cola bikarsins. Liðin hafa mæst einu sinni í sumar og lauk þeim leik með jafntefli. Liðin eru bæði í toppbaráttu Lengjudeildarinnar og því um hörkuleik að ræða.

Sem fyrr eru áhorfendur bannaðir á Hásteinsvelli en leikurinn verðu í beinni útsendingu á Stöð 2 sport.