ÍBV mætir Leikni frá Fáskrúðsfirði klukkan 16:30 á Hásteinsvelli í dag. Leiknismenn sitja í næst neðsta sæti Lengjudeildarinnar með 11 stig en ÍBV er í fjórða sæti með 25 stig. Ísfélag Vestmannaeyja býður á völlinn og hvetur bæjarbúa til að mæta á völlinn og styðja sitt lið.