Davíð Egilsson yfirlæknir á heilsugæslu Heilbrigðisstofnunar Suðurlands í Vestmannaeyjum og svæðislæknir sóttvarna í Vestmannaeyjum.

Engin þyrla á vegum landhelgisgæslunnar verður tiltæk í dag fimmtudag og föstudag, og jafnvel lengur, vegna verkfalls flugvirkja. Þyrlur landhelgisgæslunnar sinna yfirleitt sjúkraflutningum þegar ófært er fyrir venjulegt sjúkraflug frá Vestmannaeyjum en auk þess hafa þyrlur gæslunnar einnig aðkomu að alvarlegum slysum.

Óljóst með flug næstu daga
Davíð Egilsson yfirlæknir á heilsugæslu Heilbrigðisstofnunar Suðurlands í Vestmannaeyjum sagðist í samtali við Eyjafréttir vera uggandi yfir stöðunni. „Ég eiginlega trúi ekki að þessi staða sé komin upp. Við erum að fara inn í 1-2 sólarhringa þar sem mjög óljóst er með möguleika til flugs og þá er ekki margt í boði annað fyrir okkur hér í Vestmannaeyjum.“

Heilbrigðisráðuneytið hefur mælst til þess að stjórnendur heilbrigðisstofnana hugi sérstaklega að þeim þætti sjúkraflutninga sem snýr að tækjum og búnaði til flutnings en einnig að mönnun og faglegum stuðningi við bráðatilfelli á hverjum stað.

Hafa kallað út þyrluna í nóvember
Davíð segir allan viðbúnað vera þann sama og alla jafna. „Það er í boði að vera í samskiptum við þyrlulækni og lækna á LSH til ráðgjafar en það er ekkert öðruvísi en venjulega. Það var síðast í byrjun mánaðarins að við þurftum að óska eftir þyrlu í tilfelli sem mátti ekki tæpara standa. Það eru fáir staðir þar sem þetta ástand skapar meiri hættu en í Vestmannaeyjum tilliti til mannfjölda og einangrunar okkar. Staðan því sérstaklega alvarleg í Vestmannaeyjum,“ sagði Davíð að lokum og bað fólk að fara sérstaklega varlega.